Óhætt er að lofa góðri stemningu á stóra sviðinu á föstudagskvöldi Ljósanætur. Þar verður heimafólk í meirhluta og ljóst að tónlistarbærinn stendur enn undir nafni og þarf engu að kvíða. Dagskránni á sviðinu stýrir útvarpsmaðurinn geðþekki Ólafur Páll Gunnarsson eða Óli Palli á Rás 2.
20:00 Lifun
var stofnuð 2008 af Björvini Ívari (Baldurssyni, Rúnars Júlíussonar) og Haraldi Leví. Hún hefur síðan vakið athygli fyrir sitt skemmtilega dægurlagapopp. Árið 2010 átti hljómsveitin eitt vinsælasta lag ársins, Ein stök ást.
20:30 Hellvar
sem að stærstum hluta er skipuð heimafólki var stofnuð í Berlín 2005 þegar Heiða og Elvar voru skiptinemar þar í borg. Fimmmenningarnir tóku upp plötuna Stop that Noise í jólafríinu 2010 og er hún nú í framleiðslu. Sveitin lauk vel heppnaðri tónleikaferð um New Yorkfylki í sumar og mæta því vel smurð á sviðið.
21:00 Who Knew
gáfu út sína fyrstu plötu, Bits and Pieces of a Major Spectacle, haustið 2010 sem fékk mjög góða dóma þ.á.m. í Rolling Stone Magazine sem gaf henni ágætiseinkunn. Síðan þá hefur hljómsveitin vakið athygli víða um Evrópu og spilað á hátíðum eins og Eurosonic, Hróarskeldu, Vielles Charrues og Reeperbahn.
21:30 Of Monsters and Men
var sigurvegari Músíktilrauna 2010. Upphafskona sveitarinnar er Nanna Bryndís úr Keflavík. Mestur hluti sveitarinnar um þessar mundir fer í að taka upp fyrstu breiðskífuna sem beðið er með mikilli eftirvæntingu. Margir hafa spáð því að Of Monsters and Men verði næsta stóra íslenska bandið.
22:00 BLAZ ROCA
einnig þekktur sem Erpur Eyvindarson, hefur verið sprækur á sviði sjónvarps, kvikmynda, útvarps og tónlistar í meira en 10 ár. Hann hefur unnið til allra verðlauna sem eru í boði fyrir slíkt. Frumkvöðlastarf hans með hinum goðsagnakenndu XXX Rottweiler skilaði sér í því sem lesendur Morgunblaðsins álitu 18. bestu plötu Íslandssögunnar.