Viltu læra að töfra eins og Harry Potter?

Námskeið í töfrabrögðum
Staðsetning: Íþróttaakademían, Krossmóa 58
Flokkur: Börn
Netfang: Senda póst
Töframaðurinn frábæri Einar Mikael heldur námskeið í töfrabrögðum fyrir krakka á aldrinum 8 - 15 ára í fyrirlestrarsal íþróttaakademíunnar. Þar verða kennd undirstöðuatriði í töfrabrögðum og fá þátttakendur innsýn inn í hinn dularfulla heim töfrabragða. Kennd verða skemmtileg og praktísk töfrabrögð með spilum og teygjum og hugsanalestur. Börnin fá að sjá myndbönd með bestu töframönnum heims og kynnast bræðralagi töframanna þar sem allir eiga að bera virðingu hver fyrir öðrum og að lokum sverja þau töframannaeiðinn. Allt sem krakkarnir þurfa á námskeiðinu verður til staðar.
Ókeypis er á námskeiðið. Eina sem þarf að gera er að mæta á staðinn. Þátttökufjöldi takmarkast við húsrúm fyrirlestrarsalarins.
Leiðbeinandi: Einar Mikael töframaður, einn færasti töframaður landsins! Hann verður með sýningu á stóra sviðinu á laugardeginum kl. 17:00!
 
  • DEILA Á FACEBOOK
  • TIL BAKA
Dagskrá
Hljómar, Gamli bærinn minn.
Lag: Gunnar Þórðarson.

» HLUSTA Á INNSEND LÖG
Þú verður að sækja nýjasta Adobe Flash Spilarann til að hlusta á þessa upptöku.


Sláðu inn kóðann fyrir ofan: (Smelltu hér ef þú getur ekki lesið kóðann)