Hátíðartónleikar Ljósahátíðar 2011

Með blik í auga - Tónlist og tíðarandi 1950 - 1970
Staðsetning: Andrew's Theater
Flokkur: Tónlist
Netfang: Senda póst
Venju samkvæmt verður boðið upp á glæsilega hátíðartónleika í tilefni af Ljósahátíð.
Þetta árið hafa þeir hlotið nafnið – Með blik í auga, og er tímaferðalag aftur til áranna 1950 til 1970 í tónum, máli og myndum. Við förum í tímaflakk aftur til áranna þegar Hafnargatan var ómalbikuð og breyttist í stórfljót í rigningum. Þegar kaupmenn versluðu á öllum hornum og Kaupfélagið var stórveldi. Bærinn ilmaði fyrst og fremst af fiski og herinn nýbúinn að koma sér fyrir á Háaleitinu. Hallbjörg Bjarnadóttir, Ellý Vilhjálms, Haukur Morthens og Raggi Bjarna hljómuðu í óskalagaþáttum sjúklinga og sjómanna.
Það verður einmitt boðið upp á tónlist þessara listamanna auk Hljóma, Villa Vill, Flowers og Trúbrots í Andrews Theater á Ásbrú í Reykjanesbæ, sunnudaginn 4. september kl. 16 og aftur kl. 20.
Það eru frábærir söngvarar af Suðurnesjum sem stíga á svið, Valdimar Guðmundsson, Fríða Dís Guðmundsdóttir, Bríet Sunna Valdemarsdóttir Jana María Guðmundsdóttir, Guðmundur Hermannsson, Birna Rúnarsdóttir, Sveinn Sveinsson og fleiri. Það er 14 manna hljómsveit sem leikur undir.
Arnór B. Vilbergsson stjórnar hljómsveitinni og útsetur tónlistina í upprunanlegum anda.
Kristján Jóhannsson skrifar handrit og kynnir viðburðinn.
Miðasala er á midi.is en einnig verður hægt að nálgast miða á heimaslóð í forsölu sem nánar verður auglýst síðar.
  • DEILA Á FACEBOOK
  • TIL BAKA
Dagskrá
Hljómar, Gamli bærinn minn.
Lag: Gunnar Þórðarson.

» HLUSTA Á INNSEND LÖG
Þú verður að sækja nýjasta Adobe Flash Spilarann til að hlusta á þessa upptöku.


Sláðu inn kóðann fyrir ofan: (Smelltu hér ef þú getur ekki lesið kóðann)