Um Ljósanótt við leiðumst okkar veg...
Staðsetning: Útisvið við Ægisgötu
Flokkur: Útisvið
Að vanda verður boðið upp á glæsilega tónlistarveislu á Ljósanótt. Það er heimamaðurinn og fjölmiðlamaðurinn knái Guðfinnur Sigurvinsson sem stýrir dagskránni á sviðinu á laugardagskvöldið.
Fram koma:
20:00 Friðrik Dór
sló fyrst í gegn haustið 2009 með laginu Hlið við hlið. Hann var valinn nýliði ársins á Hlustandaverðlaunum FM 957 í fyrra og fyrsta breiðskífa hans, Allt sem þú átt, hefur slegið rækilega í gegn.
20:30 Magnús og Jóhann
eru lifandi goðsagnir í íslenskri tónlistarsögu en þeir félagar halda upp á 40 ára starfsafmæli um þessar mundir. Hver er ekki til í smá Yakety Yak og Mary Jane? Maggi og Jói mæta með fríðu föruneyti og bjóða okkur upp á það besta.
21:00 Baggalútur
alhliða afþreyingarsamsteypa sem sérhæfir sig í heildarlausnum á svið skemmtilegheita og uppfræðslu fyrir einstaklinga og smærri fyrirtæki. Þarf að segja meir? Þar sem er Baggalútur þar er gaman!
21:40 Helgi Björns og reiðmenn vindanna
Hvort þeir koma ríðandi í hlað er óvíst en það er klárt að Helgi Björns og félagar mætai á Ljósanótt til að trylla Suðurnesjamenn með vasklegri sviðsframkomu og lögum sem allir þekkja þótt í nýjum búningi séu.
22:15 Flugeldasýning Björgunarsveitarinnar Suðurnes og Gamli bærinn minn
22:30 Hljómsveitin Valdimar
gaf á síðasta ári út sína fyrstu plötu, Undraland. Í kjölfarið var sveitin tilnefnd sem bjartasta vonin á Íslensku Tónlistarverðlaununum 2011 og var Undraland í 5. sæti á lista Rásar 2 yfir bestu plötur ársins 2010. Við fögnum því að fá strákana okkar á svið og það á vel við að Valdimar slái botninn í tónleikadagskrá Ljósanætur með sínum notalegu tónum beint á eftir flugeldasýningunni.