Sigurjón Jóhannsson í Duushúsum

Óðurinn til lífsins
Staðsetning: Duushús, anddyri
Flokkur: Sýningar

Í anddyri Duushúsa verður sýning á verkum eftir listmálarann Sigurjón Jóhannsson. Sigurjón er fæddur á Siglufirði 1939 en myndefni sitt sækir hann einmitt til æsku- og unglingsáranna þar.

Verk hans voru í upphafi kölluð alþýðuraunsæi og talin óður til erfiðisins en sjálfur heldur hann því fram að þau séu alþýðurómantík og óður til lífsins og gleðinnar. Máli sínu til stuðnings nefnir hann síldarævintýrið sem reyndist þrátt fyrir þrældóminn sem því fylgdi, eins konar styttri leið að lífsgæðunum þar sem aðrar reglur giltu en í gráum hversdagsleikanum. Mönnum fannst þeir frjálsir í heljarviðjum þrældóms sem átti sér engin takmörk, en gaf þeim fyrirheit um betri tíð. Þetta brjálæði segir hann aldrei verða endurtekið vegna þess að þær rómatísku forsendur sem þyrfti til, verða ekki fyrir hendi, ef og þegar síld gengur aftur á gömul mið fyirr norðan og austan land.

Sigurjón útskrifaðist frá MR 1959 og lagði stund á myndlist og arkitektúr á Ítalíu. Hann stundaði nám við handíða- og myndlistaskólann og Myndlistaskólann við Freyjugötu. Fór í námsferð til London og dvaldi þar fram til 1964.
Hann var einn af fjórum stofnendum SÚM hópsins sem opnaði sína fyrstu sýningu 1965 í Ásmundarsal og á Mokkakaffi.

  • DEILA Á FACEBOOK
  • TIL BAKA
Dagskrá
Hljómar, Gamli bærinn minn.
Lag: Gunnar Þórðarson.

» HLUSTA Á INNSEND LÖG
Þú verður að sækja nýjasta Adobe Flash Spilarann til að hlusta á þessa upptöku.


Sláðu inn kóðann fyrir ofan: (Smelltu hér ef þú getur ekki lesið kóðann)