Prýði-brúðkaup á Ljósanótt

Brúðkaup
Staðsetning: Kaffi Duus
Flokkur: Almennt
Netfang: Senda póst

Nú á Ljósanótt þann 2. september nk. verður brúðkaup í Njarðvíkurkirkju. Það sem er óvenjulegt við þetta brúðkaup er að gestum hátíðarinnar er boðið að fylgjast með hluta af undirbúningi þess s.s. förðun, hárgreiðslu og ljósmyndun á Kaffi Duus og hefst undirbúningurinn þar kl. 10.00 á föstudeginum og stendur til kl. 14.00. Síðan að lokinni athöfninni í Njarvíkurkirkju kl. 17.00 keyra þau í gegnum bæinn að Duushúsum þar sem ljósmyndarinn tekur nokkrar myndir af nýgiftu hjónunum.
Brúðkaupsverkefnið Prýði, hefur verið í fullum gangi í sumar. Tilvonandi brúðhjónin þau Magnús Sverrir Þorsteinsson og Guðrún Sædal Björgvinsdóttir, hafa staðið í ströngu við undirbúninginn og hafa notið aðstoðar fagmanna innan Prýðis.
Prýði ,,verk í höndum meistara" er nafn á hópi þjónustuiðngreina innan Samtaka iðnaðarins. Um er að ræða samstarfsvettvang fimm fagfélaga. Fagfélögin sem standa að baki Prýði eru: Meistarafélag í hárgreiðslu, Ljósmyndarafélag Íslands, Félag íslenskra gullsmiða, Félag íslenskra snyrtifræðinga og Klæðskera- og kjólameistarafélagið.

  • DEILA Á FACEBOOK
  • TIL BAKA
Dagskrá
Hljómar, Gamli bærinn minn.
Lag: Gunnar Þórðarson.

» HLUSTA Á INNSEND LÖG
Þú verður að sækja nýjasta Adobe Flash Spilarann til að hlusta á þessa upptöku.


Sláðu inn kóðann fyrir ofan: (Smelltu hér ef þú getur ekki lesið kóðann)