Tökum á móti Þór á fimmtudaginn kl. 22:00Staðsetning: "Fjallið" í Innri- Njarðvík Flokkur: Almennt Góður gestur er kominn til Reykjanesbæjar í tilefni Ljósanætur. Er þar um að ræða þrumuguðinn Þór sem ekið hefur vagni sínum um himinhvolfin í árþúsund en hefur nú tyllt sér niður á annan topp litla fjallsins í Innri Njarðvík, skammt frá Víkingaheimum. Fer einmitt vel á því að hann hafi valið sér þennan stað því erlendir ferðamenn spyrja gjarnan hvort hæðin sé e.t.v. forn víkinga grafreitur. Listamennirnir Haukur Halldórsson og Sverrir Örn Sigurjónsson lánuðu verkið til Reykjanesbæjar og er það úr ryðfríu, spegilsléttu stáli sem tekur til sín öll litbrigði veðrahvolfanna. Þór heldur á hamrinum Mjölni og geithafrarnir Tanngnjóstir og Tanngrísnir draga vagninn. Þess má geta að Þór gengur líka undir nafninu Ökuþór. Ekki er vitað hversu lengi Þór mun staldra við og eru landsmenn því hvattir til að heilsa upp á hann á meðan tími vinnst til. Á fimmtudagskvöldinu kl. 22.00 verður örstutt móttaka fyrir guðinn á fjallinu. Allir eru velkomnir en fólk beðið að vera við öllu búið því þetta er jú þrumuguð og ekki loku fyrir það skotið að hann svari fyrir sig með þrumum og eldingum. |
|
|
Hljómar, Gamli bærinn minn. Lag: Gunnar Þórðarson. » HLUSTA Á INNSEND LÖG |
|
Þú verður að sækja nýjasta Adobe Flash Spilarann til að hlusta á þessa upptöku.
|
|