• Ljósanætur sýning Listasafns Reykjanesbæjar

    Flokkur: Sýningar
    Vefsíða: Skoða

    Allt eða ekkert

    Duushús Kl: 13:00 - 18:00

    Sú venja hefur skapast á Ljósanótt undanfarin ár að heimafólk hefur verið í aðalhlutverki á sýningu Listasafns Reykjanesbæjar í Duushúsum. Í ár var ætlunin að stíga skrefið til fulls og setja upp risastóra samsýningu listamanna af Suðurnesjum. Leitað var eftir verkum af öllum tegundum myndlistar.  Skilyrðin fyrir þátttöku voru aðeins tvö; að listafólkið hefði náð 18 ára aldri og byggi á Suðurnesjum.

    Markmið sýningarinnar var fyrst og fremst að sýna hina miklu grósku myndlistar á svæðinu og vonast var eftir að breiddin yrði sem mest, við fengjum lærða og leika, atvinnumenn og áhugamenn á öllum aldri sem blandast myndu í sköpuninni á eftirminnilegan hátt. Ákveðið var að hleypa öllum að sem uppfylltu skilyrðin og vildu vera með og þaðan er heiti sýningarinnar komið – við sýnum allt eða ekkert ! Tæplega 60 manns voru tilbúnir að taka þátt í þessu ævintýri undir stjórn sýningarstjórans Ingu Þóreyjar Jóhannsdóttur.

    Á sýningunni kennir ýmissa grasa og margt má þar skemmtilegt sjá. Bestu þakkir til allra sem voru tilbúnir að taka þátt í þessari djörfu tilraun og þá ekki síst sýningarstjóranum sem tókst á hendur afar erfitt verk.

    Sýningin verður opnuð með pompi og pragt fimmtudaginn 30. ágúst kl. 18:00. Allir velkomnir.
    Sýningin stendur til 21. október.

 
DEILA Á FACEBOOK | TIL BAKA

StyrktaraÐilar

SamfélagsmiÐlar