-
Með blik í auga II - Gærur, glimmer og gaddavír
Tónlist og tíðarandi áratugarins 1970 - 1980
Andrews leikhúsið á Ásbrú Kl: 16:00 og 20:00
Sýningin Gærur, glimmer og gaddavír fjallar um tónlist og tíðaranda áratugarins 1970 - 1980 og er framhald af Með blik í auga sem sló í gegn á síðustu Ljósanótt en þá var fjallað um áratuginn 1950 - 1970.
Stemningin verður rifjuð upp í glæsilegri umgjörð þar sem m.a. verður flutt tónlist eftir Magnús og Jóhann, Brimkló, Stuðmenn, Mána og ýmsa fleiri. Hver man ekki eftir sjónvarpslausum fimmtudagskvöldum og útvarpsleikritunum á gufunni þegar hringvegurinn var málið, Spur og Miranda var drukkið í sjoppunum og saxbauti var í kvöldmatinn?
Meðal flytjenda eru Valdimar Guðmundsson, Fríða Dís Guðmundsdóttir, Bríet Sunna Valdimarsdóttir og Hermannssynir Guðmundur, Karl og Eiríkur. Fjöldi annarra tónlistarmanna af Suðurnesjum taka þátt ásamt hljómsveit.
Tónlistarstjóri er Arnór Vilbergsson.
Handritshöfundur og fararstjóri er Kristján Jóhannsson.
Frumsýning er miðvikudaginn 29. ágúst kl. 20:00.
Önnur sýning fimmtudagskvöld kl. 22:00 og sú þriðja á lokadegi Ljósanætur sunnudaginn 2. september kl. 20:00.
Miðasala á midi.is.
Skrá ViÐburÐ
fréttir
-
Ánægjuleg Ljósánótt 2012
03.09.12Nýafstaðin Ljósanótt í Reykjanesbæ fór vel fram og gekk þáttur löggæslu í bænum vel. Hátíðin hófst... meira
-
Fjórði og síðasti dagur Ljósanætur
02.09.12Dagskrá Ljósanætur í Reykjanesbæ, sem staðið hefur yfir síðan á fimmtudag, hefur gengið vel í alla... meira
-
Bjartasta fjölskylduhátíð landsins!
02.09.12Veðurguðirnir héldu í sér eftir fremsta megni á laugardegi Ljósanætur. Þannig fóru hátíðahöldin fr... meira



















