• Töfrasýning Einars Mikaels - Nýtt

    Flokkur: Börn
    Vefsíða: Skoða
    Samband: Netfang

    Fjölskyldusýning

    Frumleikhúsið Kl: 19:30 - 20:40

    Töfrasýning Einars Mikaels er ein magnaðasta og mesta töfrasýning sem farið hefur um landið.
    Sýningin er stútfull af áhrifamiklum töfrabrögðum og miklum húmor . Þetta er 70 mín. löng fjölskylduvæn töfrasýning sem hefur að geyma allt það besta sem töframaðurinn Einar Mikael er búinn að vera að vinna markvisst að síðastliðin 3 ár. Einar notar lifandi dýr í atriðunum sínum, lætur hluti svífa og breytir áhorfenda tímabundið í töframann. Einar er búinn að bæta inn nýjum atriðum í sýninguna og í þetta skiptið verður leynigestur sem er einnig rammgöldrótur. Einar er einn allra færasti töframaður okkar Íslendinga um þessar mundir og er sýningin hans einstök og inniheldur nokkur atriði sem eru á heimsmælikvarða.

    Þetta er sýning sem enginn má láta fram hjá sér fara.
    Hérna er hægt að sjá brot úr sýningunni og síðan er hægt að sjá meira inná www.tofrabrogd.is

    http://www.youtube.com/watch?v=jRk-oJR9Kzs

    Miðasala á staðnum

    Miðaverð kr. 1.500

 
DEILA Á FACEBOOK | TIL BAKA

StyrktaraÐilar

SamfélagsmiÐlar