02.09.10

Ljósanótt sett

Ljósanótt var sett með pomp og prakt í morgun þegar nemendur leik- og grunnskóla bæjarins slepptu 2000 blöðrum til himins.

Framundan er gríðarlega fjölbreytt dagskrá sem hefst strax kl. 13:00 með opnu púttmóti í boði Toyota í Reykjanesbæ og hraðmóti í körfubolta í Ljónagryfunni í Njarðvík og pílukastmóti svo eitthvað sé nefnt.
Í kvöld hefst svo hinn skemmtilegi listsýningaviðburður en þá opna flestar sýningarnar á ljósanótt og tilvalið að líta við og skoða fjölbreytt list og handverk. Gestir eru hvattir til þess að mæta með hatta eða annað höfuðfat.

 
Dagskrá
Hljómar, Gamli bærinn minn.
Lag: Gunnar Þórðarson.

» HLUSTA Á INNSEND LÖG
Þú verður að sækja nýjasta Adobe Flash Spilarann til að hlusta á þessa upptöku.