02.09.10

Fjöldi listsýninga opna í kvöld og vinnustofur listamanna opnar

Að venju verður fjöldi myndlistarmanna með sýningar á ljósanótt og opnar vinnustofur sem flestar opna í kvöld.

Skemmtileg stemning skapast því í miðbænum þegar fólk lítur við á sýningar og eru gestir hvattir til þess að mæta með hatta eða önnur höfuðföt í tilefni dagsins. Þó nokkrir tóku upp á þeim sið í fyrra og verður honum vonandi áfram viðhaldið.
Það er því tilvalið að taka menningarrúntinn snemma á fimmtudeginum enda margt að sjá og erfitt að komast yfir allt.

Sossa verður með opna vinnustofu að heimili sínu við Mánagötu 1 þar sem hún sýnir ný málverk, Lína Rut sýnir verk í Kaffitári og sýningin Hugarflug sem byggir á skýjum og litum úr náttúrunni verður opnuð á Ásbrú. Fjölbreyttar listsýningar verða í Kjarna - Flughóteli og alls sýna um 20 listamenn í portinu við Svarta pakkhúsið og myndlistarsýningar eru hér um bil í hverju horni á hátíðarsvæðinu.

Á föstudeginum opna svo sýningar Suðsuðvestur og Listasafns Reykjanesbæjar og eldur og í sýning Ellerts Grétarssonar í Bíósal Duushúsa.
Gestir eru hvattir til þess að skoða allar þær sýningar sem verða í boði á ljósanótt á vef hátíðarinnar en þar er hægt að leita sérstaklega eftir sýningum og dögum.

 
Dagskrá
Hljómar, Gamli bærinn minn.
Lag: Gunnar Þórðarson.

» HLUSTA Á INNSEND LÖG
Þú verður að sækja nýjasta Adobe Flash Spilarann til að hlusta á þessa upptöku.