Ljósanótt á Icelandair Hotel Keflavík (Flughóteli) minnir okkur á hina fjölbreytilegu flóru menningar og lista og er þetta í 12. sinn sem Ljósanótt er haldin í Reykjanesbæ. Fjöldi fólks hefur komið saman undanfarin ár til að njóta menningar, lista ,veitinga og lífsins. Og til að sýna sig og sjá aðra.
Dagskrá á Icelandair Hotel Keflavík Ljósanæturhelgina 1. til 4. september 2011
Ljósanæturhelgin á Icelandair Hotel Keflavík (Flughóteli) og Vocal Restaurant
Hafnargötu 57, 230 Reykjanesbæ.
Fimmtudagur 1. september
Hátíðin opnuð með pompi og prakt. Opnun listsýninga kl 17:15. Boðið verður upp á léttar veitingar og hljómsveitin Breiðbandið mun taka nokkur lög. Sýningarsvæðin verða svo opin til kl: 21:00 á fimmtudagkvöldið.
Eftirtaldir listamenn og hönnuðir verða með sýningar á Flughóteli:
Ellert Grétarsson jósmyndari sýnir ljósmyndir úr íslenskri náttúru.
Fjóla Jónsdóttir myndlilstarkona; Sýningin ,,Minna er meira (less is more)”
Helga Steinþórsdóttir: Mýr Design ,fatahönnun og skart.
Linda Steinþórsdóttir: L.Stein Myndlist
Íris Rós Söring: Keramik – Útgeislun lita og ljóss í leir
Heiðrún Þorgeirsdóttir: Myndlist og glerskúlptúrar; Sýningin ,,Gaman og alvara".
Jónna Gunnars: Lopapeysur eigin hönnun.
Jón Adólf Steinólfsson: Myndhöggvari.
Karen Esther: Glerlist
Reynir Sýrusson: Húsgagnahönnuður.
Tómas J. Knútsson: Hollywood Yacht club, Hafnir, Ísland: Sýning á leikmunum úr Flags of our Fathers.
Föstudagur 2. september
Listsýningar opna kl 10:00 og eru opnar til kl: 21:00.
Á kaffihúsi í göngugötu verður hægt að fá léttar veitingar alla helgina og verður kaffihúsið opið frá kl: 16:00 til 21:00.
Vocal Restaurant: Steikarhlaðborð frá kl: 19:00 - Davíð Smári Idol stjarna 2005 og Ingvar Valgeirs spila og syngja fyrir matargesti.
Laugardagur 3. september
Listsýningar opna kl 10:00 og eru opnar til kl: 21:00.
Vocal Restaurant: Brunch frá kl: 11:30 til kl: 14:00.
Kaffihúsið í göngugötu: Léttar veitingar.
Kl: 16:00 Jakob Gunnarsson leikur og syngur.
KL: 17:00 Listaverkauppboð undir stjórn Svansíar á Bylgjunni (Hemmi og Svansí), þar sem listamenn og hönnuðir hafa tekið sig saman og gefa verk sem boðin verða upp og rennur allur ágóði uppboðsins til styrktar ungum dreng í Reykjanesbæ, Birkis Alfons Rúnarssonar sem greindist með bráðahvítblæði 28. janúar sl.
Einnig mun Helga Steinþórs hönnuður gefa kr. 500 af hverju armbandi sem selst á Ljósnæturhelginni.
Kl: 18:00 Jana María syngur við undirleik Arnórs Vilbergssonar.
Kl :19:00 Hlaðborð hlaðið ítölskum freistingum við seiðandi undirleik DELIZIE ITALIANE:
- Leone Tinganelli: söngur og gítar
- Jón Elvar Hafsteinsson: gítar og söngur
- Jón Rafnsson: kontrabassi og söngur
Sunnudagur 4. september
Listsýningar opna kl 12:00 og eru opnar til kl 17:00.
Fyrir þá sem ekki þekkja þá er Icelandair Hotel Keflavík (Flughótel) staðsett að Hafnargötu 57 Reykjanesbæ.