Margir mjög áhugaverðir viðburðir eru á dagskrá Ljósanætur í dag. Þar má nefna námskeið í töfrabrögðum kl. 13:00 í Íþróttaakademíunni í umsjón Einars Mikaels töframanns sem fram kom á stóra sviðinu í gærdag. Þá verða Gsopelkrakkar með útgáfu- og fjölskyldutónleika í Keflavíkurkirkju kl. 14:00 og frumsamin ljóð ljóðahóps Gjábakka flutt á Kaffi Duus kl. 15:00. Hápunktur dagsins verður vafalítið Hátíðartónleikar Ljósanætur, Með blik í auga - Tónlist og tíðarandi áranna 1950 - 1970 í flutningi frábærra söngvara af Suðurnesjum. Tónleikarnir hefjast kl. 16:00 og 20:00 í Andrew's Theater á Ásbrú.
Þá eru sýningarstaðir flestir opnir um allan bæ og um að gera að reyna að klára að skoða það sem ekki hefur tekist að komast yfir í pakkaðri dagskrá helgarinnar.
Góða skemmtun!
|
|
Hljómar, Gamli bærinn minn. Lag: Gunnar Þórðarson. » HLUSTA Á INNSEND LÖG |
|
Þú verður að sækja nýjasta Adobe Flash Spilarann til að hlusta á þessa upptöku.
|
|