Lýsing Bergsins

 

Ljósin á Berginu voru tendruð á fyrstu Ljósanótt í Reykjanesbæ árið 2000 og var lýsingin framlag bæjarins þegar Reykjavíkurborg var menningarborg Evrópu. Ljósin loga út veturinn en slökkt er á þeim yfir bjartan sumartímann. Þegar hauströkkrið færist yfir eru ljósin tendruð á ný sem markar hápunkt ljósanætur.

Útilistaverkið Bergið

Unnið af Markaðs- og atvinnumálaráði Reykjanesbæjar í samvinnu við Reykjanesbæ, Hitaveitu Suðurnesja, M2000 og Hafnarsamlag Suðurnesja, auk fyrirtækja í Reykjanesbæ sem fjármögnuðu eftirfarandi ljóskastara:

 Nr. 1  Hótel Keflavík
 Nr. 2  Sparisjóðurinn í Keflavík
 Nr. 3  Íslandsbanki
 Nr. 4  Landsbankinn
 Nr. 5  Byko
 Nr. 6  Grágás
 Nr. 7  Landssíminn
 Nr. 8  Duus
 Nr. 9  Ráin
 Nr. 10  Víkurfréttir
 Nr. 11  Gallery förðun
 Nr. 12  Olís
 Nr. 13  Sjóvá Alemnnar
 Nr. 14  Húsasmiðjan
 Nr. 15  Sérleyfisbílar Keflavíkur
 Nr. 16  Aðstoð
 Nr. 17  Aðalstöðin
 Nr. 18  Íslenskir Aðalverktakar
 Nr. 19  Eimskip
 Nr. 20  Ofnasmiðja Suðurnesja

Lýsing Bergsins var útfærð af Steinþóri Jónssyni með aðstoð tæknideildar iGuzzini frá Ítalíu og umboðsmanni þeirra á Íslandi GH Heildverslun sumarið 1999. Í greinargerð Menningarborgar Reykjavíkur um listaverkið segir meðal annars, "Lýsing Bergsins er fagurfræðilegt verk sem ekki á sinn líka á Íslandi".



 
Dagskrá
Hljómar, Gamli bærinn minn.
Lag: Gunnar Þórðarson.

» HLUSTA Á INNSEND LÖG
Þú verður að sækja nýjasta Adobe Flash Spilarann til að hlusta á þessa upptöku.
Markaðsefni