Ljósanæturhlaupið fór fram á þriðjudaginn í frábæru veðri. Hlaupið fór vel fram í alla staði og var metþátttaka. Að sögn Vikars Sigurjónssonar, skipuleggjanda hlaupsins, þá gekk undirbúningurinn á hlaupinu vel og í rauninni hafi allt gengið upp enda frábært hlaupaveður. Þá munu 500 kr af hverri skráningu renna í Minningarsjóð Ölla, en sjóðurinn styrkir börn til íþróttaiðkunar sem ekki eiga þess kost vegna bágrar fjárhagsstöðu.
Það mátti litlu muna að Ljósanæturhlaupið færi ekki fram í ljósi þess að Lífsstíll, sem hefur haldið utan um framkvæmd hlaupsins hingað til, er ekki lengur starfandi en eftir að Vikar fékk fyrirspurnir frá áhugasömum hlaupurum og hvatningu frá Hafþóri, íþrótta- og tómstundafulltrúa Reykjanesbæjar, ákvað hann að láta slag standa og halda hlaupið. Vikar er ákveðinn í að endurtaka leikin á næstu Ljósanótt og gera enn betur og vill koma bestu þökkum til starfsfólksins sem aðstoðaði hann með hlaupið sem og styrktaraðilum sem gáfu m.a. vinninga og íþróttadrykki fyrir þyrsta hlaupara sem og Reykjanesbæ.