Síðasti séns til að komast í prentaða dagskrá

Tónleikagestir á Ljósanótt
19. ágúst 2019
Víkurfréttir munu gera dagskrá Ljósanætur skil í blaðinu sem kemur út í Ljósanæturvikunni (3.-4. sept). Þeir munu stikla á stóru og gera grein fyrir megin viðburðum hátíðarinnar en vísa á vefinn til nánari upplýsinga. Þeir sem vilja eiga möguleika á að komast í prentaða dagskrá Víkurfrétta þurfa að vera búnir að skrá viðburði á vefinn www.ljosanott.is í síðasta lagi sunnudaginn 26. ágúst.