Framkvæmd Ljósanætur
Menningarsvið hefur umsjón með hátíðinni en framkvæmdastjóri þess er Valgerður Guðmundsdóttir, netfang valgerdur.gudmundsdottir@reykjanesbaer.is.
Sala á Ljósanótt
Þeir einstaklingar og félagasamtök sem hyggjast vera með sölutjöld á Ljósanótt 2011 eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við umsjónarmann söluplássa á netfangið sala@ljosanott.is og tilkynna um þátttöku. Nánari upplýsingar um leigu á tjöldum/aðstöðu má finna hér.
Þeir sem hafa hug á að vera með sölu á handverki geta sótt um aðstöðu í handverkstjöldum með því að senda tölvupóst á netfangið hallig@simnet.is
Dagskrárviðburðir á Ljósanótt
Dagskrá er sett inn á vefinn jafnóðum og hún tekur á sig mynd og eru allir þátttakendur hvattir til þess að skrá sína viðburði beint inn á vefinn www.ljosanott.is. Hægra megin á forsíðunni er flipi merktur "Skrá viðburð" þar sem upplýsingar um viðburðinn og mynd er sett inn. Viðburðurinn mun þá birtast á vefnum þegar hann hefur verið samþykktur.
Stæði fyrir húsbíla og tjaldvagna
Verða við Myllubakkaskóla (ath. opnar kl. 13:00), á Fokkunni hjá Sýslumanninum í Keflavík á Hringbraut. Einnig er bent á tjaldstæði Alex við gatnamót Aðalgötu og Reykjanesbrautar sem býður fulla þjónustu.
Einungis er boðið upp á rafmagn við Myllubakkaskóla. Wc losun er í Skólpdælustöðinni við Fitjabraut 1a.
Gjaldtaka fyrir húsbíla/ferðavagna er kr. 2.000 án rafmagns og kr. 3.000 með rafmagni. Gildir alla helgina.
Ljósanæturstrætó
Við hvetjum ykkur til þess að nota Ljósanæturstrætó sem ekur frá Reykjaneshöll á klukkutíma fresti frá kl. 16:00 - 24:00 á föstudag og 11:00 - 24:00 laugardag.
Strætó ekur leiðina:
Mínútur yfir heila tímann
Frá Reykjaneshöll (00) - Grænásbraut 1220 (07) - Engjadalur (15) - Akurskóli - (17) - Reykjaneshöll (30) - Holtaskóli - Vatnsholt (36) - Heiðarsel (41) - Norðurtún (45) - Reykjaneshöll (50). Stoppað á öllum stoppistöðvum á leiðinni.
Leigubílar
Söfnunarstaður leigubifreiða á laugardag og aðfararnótt sunnudags er við Tjarnargötutorg (Tjarnargötu 12).
Bílastæði
Bent er á bílastæði neðan Hafnargötu við Ægisgötu, bílastæði við Tjarnargötu 12, bílastæði við Reykjaneshöll og leikvang UMFN og við Fjölbrautaskóla Suðurnesja og íþróttahús.
Lokanir gatna
Takmarkanir verða á umferð gatna við hátíðarsvæði. Lokað verður neðan Kirkjuvegar og Sólvallagötu frá Gróf og að Aðalgötu á laugardeginum. Íbúar eru hvattir til þess að skilja bílana eftir heima og ganga að hátíðarsvæði. Íbúar í lokuðum hverfum geta ekið inn og út um Norðfjörðsgötu. Einnig er hægt að aka upp Suðurgötu og út að Skólavegi.
Salerni
Salerni verða staðsett við Öryggismiðstöð á Norðfjörðsgötu og á Ægisgötu við smábátahöfn. Einnig eru salerni á tjaldsvæðum við Myllubakkaskóla og hjá sýslumanni.
Öryggismiðstöð verður starfrækt að Hafnargötu 8: Þangað verða færð börn og ungmenni vegna brota á útivistarreglum eða vegna ölvunar. Hringt verður í foreldra og þeir beðnir um að sækja börn sín. Foreldrar eru hvattir til þess að njóta Ljósanætur á ábyrgan hátt með börnum sínum.
Upplýsingasími Ljósanætur er 891-9101. Gott ráð er að skrifa gsm númer á handabak ungra barna ef þau skyldu verða viðskila.
Geymum hundinn heima
Munum eftir dýrunum og gerum ráðstafanir þeim til verndar á meðan flugeldasýningunni stendur.
Hundar verða ekki leyfðir á hátíðarsvæði á laugardeginum.
Geymum hundinn heima á Ljósanótt. Sumir eru hræddir við hunda og mörgum hundum líður ekki vel í margmenni og hávaða.
Göngum vel um bæinn
Ruslafötur eru staðsettar víða á hátíðarsvæði - göngum vel um bæinn okkar á Ljósanótt.
Ljósanæturfánar
Hægt er að fá fyrirtækjafána á ljósastaura hjá Víkurfréttum s. 421 0000 eða senda póst á netfangið gunnar@vf.is. Merkiprent gerir annað markaðsefni og aðra fána sem og Plexigler.
Öryggi í fyrirrúmi á Ljósanótt
Til að tryggja öryggi og halda uppi gæslu á Ljósanótt hefur Öryggisráð Ljósanætur útbúið nákvæma áætlun fyrir alla aðila er koma að öryggismálum á svæðinu. Öryggisráðið, sem samanstendur meðal annars af fulltrúum slökkviliðs og sjúkraflutninga, lögreglu og björgunarsveita, hefur yfirfarið öryggismál sem tengjast svæðinu og hátíðarhöldum á komandi Ljósanótt. Hugað hefur verið sérstaklega að skipulagi á svæðinu og hugsanlegum uppákomum, aðkomu lögreglu, slökkviliðs og sjúkrabíla og annarra viðbragðsaðila sem og verkþætti og viðbrögð þeirra. Ýmislegt hefur komið í ljós og hafa verið gerðar úrbætur og áætlun um viðeigandi ráðstafannir.
Öryggisráð Ljósanætur minnir á Öryggismiðstöð/Upplýsingaþjónustu, þar sem fulltrúar frá slökkviliði og sjúkrahúsi eru í beinum samskiptum við alla viðbraðgsaðila og er Öryggismiðstöðin beintengd Lögreglu, Slökkviliði og Neyðarlínu.
Slökkvilið Brunavarna Suðurnesja og Lögreglan verða með aukinn útkallsstyrk á tímabilinu 12 á hádegi og fram eftir nóttu.
Með notkunn TETRA fjarskiptakerfisins verður beint samband við Neyðarlínu og samræmt fjarskiptasamaband við viðbragðsaðila s.s. Slökkvilið, Lögreglu, Björgunarsveit Suðurnesja og Sjúkrahús. Því verður hægt að virkja hópslysaáætlun með stuttum fyrirvara. Hlutverk viðbraðsaðila er víðtækt en skilgreint eins og kostur er. Þá er ákveðið að fulltrúar viðbragðsaðila mæti í Öryggsimiðstöð á hádegi til að fínstylla verkþætti og yfirfara stöðu mála, prófa fjarskipti og fl.
Björgunarsveitin Suðurnes verður með björgunarbátinn Njörð allann daginn, en báturinn verður mannaður köfurum í viðbragðsstöðu og er fulltrúi þeirra í beinu sambandi við Öryggismiðstöðina. Þá verður einnig gæsla á svæðinu og bílar á ferðinni.
Öryggisráð
Guðlaugur Sigurjónsson framkvæmdastjóri Umhverfis- og skipulagssviðs
Skúli Jónsson, Lögreglan á Suðurnesjum
Jón Guðlaugsson, Brunavarnir Suðurnesja
Kári Viðar Rúnarsson, Björgunarsveitin Suðurnes
Hera Ósk Einarsdóttir, Fjölskyldu og félagsþjónusta
Hafþór Barði Birgisson, Útideild
Bjarni Þór Karlsson, Þjónustumiðstöð
Dagskrá er birt með fyrirfara um breytingar.
Menningarsvið Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, er skipuleggjandi Ljósanætur. Allar upplýsingar eru veittar í gegnum netfangið ljosanott@ljosanott.is, á bæjarskrifstofum Reykjanesbæjar í síma 421 6700 og í upplýsingasíma Ljósanætur ljósanæturhelgina 898 1202.
|
|
Hljómar, Gamli bærinn minn. Lag: Gunnar Þórðarson. » HLUSTA Á INNSEND LÖG |
|
Þú verður að sækja nýjasta Adobe Flash Spilarann til að hlusta á þessa upptöku.
|
|