Það verður enginn svikinn af gómsætri íslenskri kjötsúpu sem Skólamatur býður gestum Ljósanætur upp á að vanda.
Athugið að súpan verður staðsett við íþróttahúsið á Sunnubraut þar sem tónleikar fara fram í B-salnum í skjóli frá veðri og vindum.
Hvað er betra en að gæða sér á geggjaðri kjötsúpu og hlusta á flotta tónleika?
Á föstudag snúum við á veðurguðina og gerum ótrúlega spennandi breytingu á dagskrá Ljósanætur.
Það verður boðið upp á sannkallaða tónlistarveislu og skemmuupplifun í B sal íþróttahússins við Sunnubraut 34. Skólamatur býður í súpu frá kl. 18-20 og eftirfarandi aðilar koma fram á sviðinu:
Úrslit úr Hæfileikakeppninni
Sissa - sigurvegari í Söngvakeppni Framhaldsskólanna 2023
Kósýbandið
Sigga Beinteins og Grétar Örvarsson
Midnight Librarian
Páll Óskar
DEMO
Heimatónleikar í Gamla bænum verða föstudagskvöldið 1. september í sjöunda skiptið!
Búið er að ráða frábæra listamenn sem koma fram á nokkrum heimilum í Reykjanesbæ og spila fyrir almenning ýmist úti á palli eða inni í stofu gestgjafanna.
Tónleikarnir hefjast í öllum húsunum kl. 21.00 og verða endurteknir kl. 22.00.
Fólk gengur á milli húsa og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi fyrir utan hvað það skapast alltaf skemmtileg stemning í húsunum.
Listafólkið sem kemur fram í ár er eftirfarandi:
Sigga og Grétar KK, Lay Low, Heiðar úr Botnleðju, Mugison og Hreimur Örn Heimission
Uppselt er á tónleikana!
ATHUGIÐ að vegna veðurs hafa tónleikarnir verið færðir inn í Stapa. Að öðru leiti helst dagskrá og tímasetningar. Húsið opnar kl. 19:30 og tónleikar byrja stundvíslega kl. 20.30“
Dagskráin samanstendur af frábærum listamönnum!
Breiðbandið 20 ára, hitar upp af sinni alkunnu snilld, hin frábæra Una Torfa flytur sín bestu lög, Björn Jörundur kveikir í tónleikagestum eins og honum einum er lagið og hljómsveitin Hjálmar lýkur kvöldinu með glæsibrag.
Uppselt er á tónleikana.
Sýning á keramikmunum og olíumálverkum eftir listamanninn Aldísi Yngvadóttur.
Tilvalið að fá sér bíltúr í Hafnir, eina ef perlum Reykjanesskagans.
Kjallarinn á Ragnheiðarstöðum verður baðaður ljósi og smekkfullur af fjölbreyttum verkum.
Handverkstjaldið undir bárujárnsþak
Hið margrómaða handverkstjald flyst undir bárujárnsþak þessa Ljósanótt þar sem ekki er útlit fyrir gott veður til að tjalda. Við deyjum þó ekki ráðalaus heldur færum handverksmarkaðinn inn í SBK húsið í Grófinni 2. Þar lofum við frábærri markaðsstemningu.
Tjald handverksfólks verður á sínum stað líkt og venjulega á Ljósanótt.
Í handverkstjaldinu er seldur allskyns varningur handverksfólks en tjaldið verður opið alla helgina.
Elísabet Ásberg List.
Hlakka til að taka á móti ykkur í sögulega Fischerhúsinu að Hafnargötu 2.
Duus handverk selur fallegt Íslenskt handverk frá 25 listamönnum. Í tilefni af Ljósanótt verðum við með 10% afslátt af vörunum okkar.
Við erum með fjölbreytt úrval af handverki og auðvelt að finna minnistæða gjöf.
Verið velkomin 🥰
Föstudaginn 1. september kl. 16.30 stígur á stokk Jazzbandið
Þríó í Miðju Bókasafnsins.
Sveitina skipa; Jón Böðvarsson - Saxófón, Karl Snorri Einarsson - Bassi og Sigurður Baldvin Ólafsson - Gítar.
Í þessari listasmiðju gefst gestum og gangandi tækifæri á því að taka þátt á seinustu listasýningu Gallerý Grind sumarið 2023.
Fyrir utan galleríið er aðstaða fyrir gesti til þess að skapa sín listaverk sem síðan eru hengd upp í galleríinu sjálfu þegar verkinu hefur verið lokið. Efni og áhöld eru á staðnum frí til notkunar og sömuleiðis verður listamaður á svæðinu til aðstoðar.
Samhliða listasmiðjunni verður hoppukastali og leikir í boði fyrir fjölskyldur og gesti. Einnig er setuaðstaða þar sem hægt er að slaka á og sötra á kaffi eða svala.
Keflvíkingurinn Marta Eiríksdóttir, rithöfundur og jógakennari, kynnir nýjustu bók sína með upplestri og spjalli.
Þetta er önnur útgefna bók höfundar á þessu ári en Marta gaf út ástarsögu í maíbyrjun. Nýjasta bók Mörtu er handbók, einskonar leiðarvísir fyrir gyðjur sem vilja bæta líf sitt.
Báðar bækurnar verða á sérstökum kynningarafslætti þennan dag.
Hæfileikakeppni er viðburður sem Reykjanesbær í samstarfi við Leikfélag Keflavíkur heldur fyrir börn í 3. - 10. bekk í grunnskólum bæjarins.
Forkeppni fer fram dagana 29. og 30.ágúst þar sem hluti fer áfram í úrslit sem fara fram á sviðinu á Tjarnargötutorgi föstudaginn 1. september.
Hægt er að keppa með einstaklingsatriði eða í hóp með allt að 5 manns. Atriðið má vera allt að 3 mínútur að lengd og má vera hvernig atriði sem er. Mikilvægt er að vera með vel æft atriði!
Ef þú lumar á geggjuðum hæfileikum hvetjum við þig til að skrá þig.
Ef þú þekkir einhvern sem ætti að taka þátt þá endilega bentu á keppnina og hvettu til þátttöku.
Skráningu lýkur sunnudaginn 27. ágúst!
Allar nánari upplýsingar má fá á netfanginu
Á sýningu Gunnhildar Þórðardóttur, Bland í poka, á Ljósanótt 2023 eru bæði tví- og þrívíð verk og ný verk í bland við gömul. Auk þess mun listamaðurinn vera með ljóðabækur sem hún hefur gefið út og lesa vel valin ljóð.
Listaverk Gunnhildar fjalla oft um heimspekileg fyrirbæri en í listaverkum sínum túlkar hún vangaveltur sínar um lífið og tilveruna auk þess sem hringrásarhagkerfið hefur alltaf verið ofarlega á baugi í hennar verkum enda mikill umhverfissinni.
Öll verkin á sýningunni eru einnig gerð úr afskurði úr hinum ýmsa efniviði t.d. timbri eða úr hlutum sem fá nýtt hlutverk s.s. gömul húsgögn eða listaverk.
Allir velkomnir.
Akríl málverk af konum eftir Halldóru Sif
Sigga Beinteins og Grétar Örvars koma öllum í Ljósanæturstuð á Kjötsúpusviðinu
Egils Gull og Rico Promosh kynna: Aron Can á Paddy's.
Danni Deluxe þeytir skífum inn í nóttina þegar Aron klárar.
Miðaverð 3.500k í forsölu, 4.500kr við hurð.
Miðasala hefst í Stubb appinu miðvikudaginn 23. ágúst.
https://stubb.is/events/ndj1Vo
Ljósmyndasýning eftir Þórdísi Erlu Ágústsdóttur
Of ung fyrir krabbamein? Frásögn um baráttu Sóleyjar
Þórdís Erla ljósmyndari og Sóley Björg flugmaður og flugkennari hjá Atlanta, ættuð frá Suðurnesjunum, taka á móti ykkur á opnun ljósmyndasýningar sem hefur farið hringferð um Ísland og verður sýnd í síðasta skiptið á Ljósanótt! Ljósmyndasýningin varð til í samvinnu þeirra tveggja og Brakkasamtakanna.
Sóley Björg Ingibergsdóttir greindist með brjóstakrabbamein aðeins 26 ára gömul. Sóleyju datt í hug að athuga hvort hún hefði BRCA2 meinvaldandi breytingu sem eykur líkur á krabbameini þegar Íslensk erfðagreining opnaði aðgang að þeim upplýsingum. Hún var 25 ára á þessum tíma og ekki þekkt áhætta um krabbamein í fjölskyldu Sóleyjar. Í kjölfar niðurstöðu greiningarinnar um að vera BRCA arfberi hélt Sóley að hún myndi byrja í reglulegu eftirliti en var sagt að hafa ekki áhyggjur og koma aftur eftir fimm ár. Tæpum tveimur árum síðar finnur Sóley Björg sjálf hnút í brjóstinu og greinist í kjölfarið með brjóstakrabbamein. Hún undirgengst lyfjameðferð, tvöfalt brjóstnám og geislameðferð.
Ljósmyndasýningin er haldin til vitundarvakningar fyrir bæði almenning og þá sem ákveða umgjörð og stefnu heilbrigðiskerfisins fyrir fólk með meinvaldandi breytingu. Hér er fjallað um unga konu sem samkvæmt innsæi sínu fór í það að sækjast eftir athugun á því hvort hún væri með BRCA breytingu í geni og greinist í kjölfarið með krabbamein. Markmiðið með sýningunni er að vekja athygli á stöðu arfbera. Einnig að upplýsa og fræða og hvetja til áframhaldandi umræðu og rannsókna á sviðinu. Síðast en ekki síst er markmiðið að vekja athygli á arfgengum krabbameinum á Ísland og mikilvægi erfðaprófunar og þekkingu um breytingar sem valda aukinni áhættu.
Myndefni ljósmynda sýningarinnar er dramatískt og það er ekki reynt að komast hjá því þar sem ætlunin er að undirstrika það hvernig lífið með BRCA getur umbylt lífi fólks. Sóley Björg er hugrökk ung kona sem er tilbúin til að segja og sýna sögu sína til að vekja athygli á þessu mikilvæga málefni.
Menningarfélagið Bryggjuskáldin efnir til ljóðasamkeppni á Suðurnesjum í tilefni af Ljósanótt.
Vinningsljóðin úr keppninni verða tilkynnt föstudaginn 1. september kl. 16.00 í Miðju Bókasafnsins. Á sama tíma fer fram verðlaunaafhending. Öll velkomin og viðburðurinn er ókeypis.
Reglur keppninnar eru einfaldar: Innsent ljóð má ekki hafa birst áður og æskilegt er að það fjalli um Suðurnesin á einn eða annan hátt.
Veitt verða verðlaun fyrir besta ljóðið að mati dómnefndar og auk þess fá tvö ljóð í viðbót viðurkenningu.
Í dómnefnd sitja skáldin: Anton Helgi Jónsson, Ragnheiður Lárusdóttir, Guðmundur Magnússon, Gunnhildur Þórðardóttir og þýðandinn Helga Soffía Einarsdóttir.
Ljóðin skal merkja með dulnefni ásamt nafni, heimili, netfangi og símanúmeri höfundar í öðru lokuðu umslagi með sama dulnefni merkt „Ljósberinn“ til Bókasafns Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, 230 Reykjanesbæ.
Skilafrestur rennur út 28. ágúst. Einnig má senda ljóðin ásamt upplýsingum um höfund á netfangið: Stefania.Gunnarsdottir@Reykjanesbaer.is ef það hentar betur.
Frekari upplýsingar veitir Guðmundur Magnússon gudmundur@steinbogi.is
Midnight Librarian spilar á kjösúpusviðinu frá kl. 19:00-19:30
Páll Óskar kemur fram á kjötsúpusviðinu og kemur öllum í sannkallað Ljósanæturstuð!
Ljósanæturmeistrinn í pílukasti!
Spilað verður 501.
Bæði karla- og kvennariðlar.
kr 1500.
Verðlaun fyrir efstu 4 sætin.
Pílufélag Reykjanesbæjar er á Keilisbraut 755.
Föstudaginn 1 september 2023.
Nánari upplýsingar eru í síma 790-1180
Listasýning og opin vinnustofa hjá Ásdísi Erlu (diserla).
Nýjar áskoranir, ný hlutverk og áhugamál sameina konur á miðjum aldri. Á listasýningunni KONUR eiga þessar konur sameiginlegt að lifa lífinu á húmorískum nótum í vatnslitamyndum Ásdísar.
Á vinnustofunni verða Jólakonurnar-dagatal sem nýkomið er úr prentun til sölu sem og vinsælu tækifæriskerti Ásdísar m. a. Þakklætiskerti, vináttukerti og jólakerti.
Hvað eiga pennar, plastpokar, bíóprógrömm, servíettur og eldfæri sameiginlegt?
Þetta eru allt smáhlutir sem hafa verið framleiddir með ákveðið notagildi í huga. Þegar þeir hafa lokið hlutverki sínu enda þeir oftar en ekki í ruslinu. Til eru þeir sem hafa þó einsett sér að safna slíkum hlutum með það markmið að eignast sem flesta og af mismunandi gerðum. Á sýningunni má sjá smáhluti sem hafa borist Byggðasafni Reykjanesbæjar sem heildstæð einkasöfn eða hluti af öðrum gjöfum.
Annað atriði sem þessir smáhlutir eiga sameiginlegt er að þeir voru fjöldaframleiddir á árum áður en eru margir fágætari í dag. Stór hluti er merktur fyrirtækjum eða vörum og enda voru þeir ýmist gefnir, látnir fylgja með öðrum vörum eða seldir vægu verði. Hér gefst því tækifæri til að virða rifja upp liðna tíð og virða fyrir sér hvernig myndskreytingar og vörumerki hafa breyst. Elstu munirnir eru frá þriðja áratug 20. aldar en þeir yngstu aðeins nokkurra ára eða áratuga gamlir.
Byggðasafn Reykjanesbæjar hefur sýningar í Bryggjuhúsi Duus safnahúsa, Duusgötu 2-8, 230 Reykjanesbæ. Opið er alla daga frá 12 – 17.
Pakkið í Svarta Pakkhúsinu sýnir málverk og skúlptúr.
Listamenn eru: Halla Harðardóttir, Bjarnveig Björnsdóttir, Bragi Einarsson, Seweryn Chwala, Jóhann Maríusson og Þóra Jóna Dagbjartsdóttir.
Myndefni sýnt á skjavarpa um sögu
Keflavíkur á útisvæði við Svarta Pakkhúsið.
Dagmar Róbertsdóttir (Dalla) Myndlist.
Tekur þátt í samsýningu á Park Inn
Boðið verður upp á léttar veitingar við opnunina á fimmtudeginum.
Edda Skúladóttir, hannar undir merkinu Fluga design sem er fata og fylgihlutalína fyrir konur á öllum aldri. Hún lauk sveinsprófi klæðskera 1996 og er með 9 ára starfsreynslu í tískubransanum í Los Angeles.Flutti heim til íslands 2005 og Fluga design varð til um 2011.
“Ég vinn mína hönnun má segja alla leið, þ.e hanna, geri snið og sauma allt sjálf."
Hún notar eingöngu gæðaefni og vinnur munstrin sjálf með handlitun og/eða handmálun en þannig verður hver og ein flík einstök.
Netverslun www.fluga.is
Í fyrsta sinn á Ljósanótt tekur Keflvíkingurinn, Marta Eiríksdóttir, rithöfundur og jógakennari, þátt í samsýningu á ritverkum sínum.
Listakonurnar eru eftirfarandi:
Dagmar Róbertsdóttir. Myndlist.
Fjóla Jóns. Myndlist.
Íris Rós Söring. Myndlist.
María Arnardóttir. Maju Men.
Sigga Dís. Myndlist.
Sigrún Ýr. byKrummi.is
Boðið verður upp á léttar veitingar við opnunina á fimmtudeginum.
Taylors Tívolí verður á Ljósanótt með tívolítæki fyrir alla fjölskylduna, leiki, candyfloss og alvöru Tívolí stemmningu!
Rokksafn Íslands er frábært safn fyrir alla fjölskylduna. Þar geta gestir kynnt sér sögu íslenskrar popp og rokktónlistar á gagnvirkan hátt.
Á safninu er að finna tímalínu sem fjallar um íslenska popp og rokktónlist allt frá árinu 1835 til tónlistarmanna og hljómsveita á borð við Björk, Of Monsters and Men, Sigur Rós, Kaleo og fleiri.
Á safninu er að finna stórt og gagnvirkt sýningaratriði sem hylur stærsta vegg safnsins þar sem upplýsingum um íslenska tónlistarmenn er varpað á tólf metra breiðan vegg. Tilgangur atriðisins er að gera safngestum kleift að kafa dýpra í sögu þeirra listamanna sem fjallað er um í sýningaratriðinu en atriðið blandar saman skrifaðri sögu listamannanna ásamt ljósmyndum, myndböndum og tónlist. Safngesturinn velur sjálfur hvaða vínylplötu hann setur á fóninn og svo snýr hann plötunni sjálfur á meðan hann skoðar efnið sem tengist listamanninum.
Auk þess geta safnagestir prófað ýmis hljóðfæri svo sem rafmagnsgítar, bassa, trommur og sérhannaðan karókí-klefa þar sem gestir geta sungið ýmis lög.
Rokksafn Íslands er fyrir alla – bæði þá sem þekkja og elska íslenska tónlist og þá sem vilja fræðast betur um hana.
Safnið er opið alla daga frá 11:00-18:00.
Ókeypis aðgangur er á Rokksafn Íslands á meðan Ljósanæturhátíðinni stendur.
Sala á silkislæðum, mjúkum treflum og töskum með mynstrum úr íslenskri náttúru. Tækifæriskort og myndverk.
Ljósmyndasýningin Paradís
Ljósmyndari Larz
Stemmingin í myndunum er ævintýraleg og eru flestar af íslenskri náttúru. Myndirnar reyna að fanga fegurð landins en líka hversu ógnvekjandi það getur verið. Túlkun þeirra er opin og í huga þess sem skoðar.
Kjarninn í sýningunni er að tengja við arfleið forfeðra, þar sem fjörugt ímyndunarafl mætti stórbrotinni náttúru og þjóðsögur urðu til. Myndirnar segja sögur.
Ljósmynda- og kvikmyndasýning - Óður til Reykjaness.
Sýning sem sýnir landslag og náttúru Reykjanes bæði í ljósmyndum og kvikmynd.
Hlakka til að sjá ykkur í gömlu dráttarbrautinn við Duus húsin.
Jón R. Hilmarsson - Ljósmyndari:
Jón er sjálfmenntaður íslenskur landslags- og náttúruljósmyndari á Íslandi. Hann byrjaði að taka ljósmyndun alvarlega árið 2007 og hefur hlotið alþjóðlega viðurkenningu fyrir verk sín. Myndir hans, sem sumar hafa hlotið alþjóðleg verðlaun, hafa verið birtar um allan heim í blöðum, tímaritum og ýmsum bókum.
Með mikilli ástríðu fyrir ljósmyndun og ferðalögum um Ísland reynir Jón að draga fram áhugavert landslag, náttúru og þekkt kennileiti. Oft er farið að nálgast viðfangsefnið í ljósaskiptunum en þá gerast oft ótrúlegir hluti í náttúrunni sem gefur myndunum fjölbreyttari umgjörð og litskrúðugri en venjulega.
Frá því Jón byrjaði að mynda íslenskt landslag og náttúru hefur hann haldið fjölda sýninga hér heima og erlendis - t.d. verið sýningu á opnunarkvöldi á "Norrænum vikum í St. Pétursborg". Hann hefur einnig gefið út nokkrar ljósmyndabækur.
Jón hefur haft mikinn áhuga á heimildarmyndagerð um landslag og náttúru Íslands og hefur m.a. gefið út kvikmynd um eldgos á Reykjanesi sem var sýnd í sjónvarpi og norðurljós á Íslandi - Magical Sky Iceland. Kvikmyndaverk hans hafa verið sýnd um allan heim, t.d. á listahátíð í Japan.
www.magicalskyiceland.com / www.iphotographiceland.com - jonhilmarsson.photography@gmail.com
Líf, gleði og ró er heiti sölusýningar hjá Drífu keramik í versluninni Bústoð. Þetta eru vegglistaverk sem saman standa af mörgum einstökum keramik og póstulíns hlutum, sem mynda ákveðna heild en geta líka staðið einir og sér. Áferð og litir tala sínu máli.
Verkin eru handuninn og eru einstök, innblásturinn kemur frá náttúrunni, lífinu og leiknum.
Í Fishershúsi er Tobba með sýningu á skúlptúr og myndlist. Óðinn, Þór, og Freyja birtast okkur ljóslifandi í koparvír og steypu.
Það er gaman að segja frá því að Tobba er með einkasýningu á myndlist og skúlptúr í höfuðborg Kína (26 júlí til 19 ágúst), sem hefur slegið í gegn og fengið frábærar viðtökur. Í tilkynningu frá sendiráði Íslands í Kína er sýning Tobbu sú fyrsta þar í landi í mörg ár.
Silfuhringir og mynt
Sýningin fjallar um stórkostlegar konur frá Reykjanesbæ og höfuðborgarsvæðinu sem vildu einbeita sér að eða bæta sjálfsviðurkenningu sína með því að sitja fyrir á myndlistarmyndum. Engin módelreynsla var nauðsynleg en allir þátttakendur höfðu áskorun, að hugsa um og nota einn fatnað að eigin vali fyrir myndalotuna sína.
25 konur svöruðu opnum símtölum sem birtar voru á samfélagsmiðlum, 18 myndalotur voru loksins gerðar og nokkrir áhugaverðir hlutir voru notaðir sem þættir í lotunni. Mjög jákvæð viðbrögð fengust frá öllum þátttakendum og þessar einkamyndastundir hjálpuðu þeim í raun að bæta sjálfsálit sitt og sjálfsviðurkenningu.
Verkefnið var unnið í Keflavík frá maí til júlí 2023 og var styrkt af Menningarsjóði Reykjanesbæjar.
Blaut blágerð er ljósmyndasýning búin til með sólarljósi á vatnslitapappírsblöðum. Það líkist oft vatnslitamálun. Allar myndir eru einstakar, jafnvel nota sömu þætti eða útlit - það er ekki hægt að gera tvö nákvæmlega eins afrit.
Leyfðu mér að bjóða í heiminn minn af blómablómaprentun, vona að þú hafir gaman af því. Sjáumst í Fischer-húsinu, Adam Dereszkiewicz
• Íslensk hönnun og framleiðsla • handgerð í litlu magni •
Reykjavík Candle Co. byKrummi var stofnað haustið 2021 með því markmiði að framleiða hrein hágæða ilmkerti úr bestu fáanlegu hráefnum til kertagerðar en kertin eru hvorki skaðleg heilsu né umhverfinu og eru ekki prófuð á dýrum
Maju Men heklað skart tekur þátt í
samsýningu með listakonum þetta árið. Maja verður að vanda með mikið úrval af hálsmenum, armböndum, lyklakippum ofl.
Sjón er söguríkari.
Boðið verður upp á léttar veitingar við
opnunina á fimmtudeginum.
Hlakka til að taka á móti ykkur á Park Inn By Radisson.
Boðið verður upp á léttar veitingar við opnunina á fimmtudeginum.
AtlantikH
er vistvæn Islensk hönnun sem framleiðir hágæða töskur og belti úr Islensku lambaleðri og fiskroði.
Stúdíó ART CASE - Marta Ryba
Hafnargata 15, 230 Keflavík
- Málverk - Akril á striga
- Teiknað á pappír
- Hágæða listaverkaeftirprent
- Verk til sölu
Listamaður
Marta Ryba hefur starfað við eigin list síðan 2011 og er enn að læra og þróast. Hún er tungumálakennari.
Sjá meira inni á
www.marta-ryba.art
Verið hjartanlega velkomin!
Instagram: marta_ryba_art_case
Facebook: artcasemartaryba
Tiktok: @martarybaart
Óli prik verður á handverksmarkaðinum sem hefur verið færður inn í SBK verkstæðishúsið sem er við gömlu dráttarbrautina við smábátahöfnina, opið verður fimmtud - sunnud.
Mikið úrval af húfum, buffalóum og fl. Nafnamerkt á staðnum
Enn og aftur er Tækifæris Tattoo mætt á staðinn.
Skemmtun fyrir alla fjölskylduna.
Söng- og leikkonan Jana María leiðir áhorfendur í gegnum tónlistina sem tengdi Suðurnesin við veru Varnarliðsins ásamt píanóleikaranum Vigni Þór Stefánssyni.
Á efnisskrá má meðal annars finna tónlist þekkta í flutningi Burt Bacharach, Ellýjar og Villa Vill, Frank Sinatra, Caterina Valente, Hljóma og fleiri.
Nærvera bandaríska hersins á Keflavíkurflugvelli hafði óneitanlega áhrif á líf og störf Suðurnesjamanna á seinni hluta síðustu aldar.
Menningin í Keflavík tók stórum breytingum, ekki síst tónlistarlega, því herinn þurfti jú hljómsveitir og íslenskar söngkonur til að koma fram á klúbbunum.
Öll velkomin á meðan húsrúm leyfir.