Árgangagangan verður að sjálfsögðu á sínum stað í ár enda einn af hápunktum hátíðarinnar.
Líkt og áður færist mætingarstaður í gönguna niður um 20 húsnúmer, til dæmis sá sem er fæddur árið 1950 mætir nú við Hafnargötu 30.
Árgangur ´01 og yngri hittast við 88 húsið.
Boðið verður upp á fjölbreytta barnadagskrá í Skrúðgarðinum í Keflavík.
Öll dagskrá í garðinum verður börnum að kostnaðarlausu.
Birt með fyrirvara um að veðrið verði gott :)
11:30-16:30 Hoppukastalaland (ef veður leyfir)
13:30-15:30 Andlitsmálning inni í Bókasafni Reykjanesbæjar
14:30-16:30 Hestar
Dagskrá á sviði:
15:00 - 15:30 Danskompaní
15:45 - 16:15 Kósýbandið með krakkapartý
16:30 - 17:00 Leikhópurinn Lotta
BMX brós eru þekktir fyrir frábærar sýningar á flottu BMX hjólunum sínum.
Þeir leika listir sínar á Vesturgötunni nær hringtorginu á Hafnargötunni. Áhorfendur eru hvattir til að fá sér sæti í grasinu og njóta frábærrar sýningar og spjalla við snillingana í BMX brós!
Viðburðurinn er ókeypis og öll velkomin!
Í framhaldi af árgangagöngu tekur við dagskrá á aðalsviði.
Stórsveit Suðurnesja tekur á móti göngunni.
Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri, býður gesti velkomna
Heimsmeistarar heiðraðir
Trúbadoradúettinn Heiður heldur uppi stemningunni þar til hópakstur ekur fram hjá aðalsviði.
Glæsikerrur munu efna til hópkeyrslu á Ljósanótt líkt og hefð er fyrir.
Akstursleiðin í ár er þó breytt en hersingin ekur niður frá N1 niður Víkurbraut, Hrannargötu og svo Ægisgötu fram hjá aðalsviðinu og verður bílum lagt aftan við Duus Safnahús og bifhjólum fyrir neðan Duus Safnahús, við smábátahöfnina til að gleðja gesti og gangandi.
Ljósanótt nær hápunkti sínum á stórtónleikum á aðalsviði á laugardagskvöldi Ljósanætur.
Birt með fyrirvara um tímasetningar geta breyst.
20:00 - Loveguru
20:10 - Daniil
20:30 - Bríet
21:00 - Friðrik Dór
21:30 - Írafár
22:00 - Bjartasta flugeldasýning landsins
22:00 - Emmsjé Gauti
Strax að sýningunni lokinni verða ljósin á berginu kveikt sem lýsa okkur í gegnum vetrarskammdegið.
Tónlistardagskrá heldur svo áfram að flugeldasýningu lokinni.
Það er Björgunarsveitin Suðurnes að vanda sem sér um framkvæmd sýningarinnar.
Vilt þú fá flott andlitsmálningu í tilefni Ljósanætur?
Andlitsmálnginin verður færð inn í Bókasafn Reykjanesbæjar.
Sýning á keramikmunum og olíumálverkum eftir listamanninn Aldísi Yngvadóttur.
Tilvalið að fá sér bíltúr í Hafnir, eina ef perlum Reykjanesskagans.
Kjallarinn á Ragnheiðarstöðum verður baðaður ljósi og smekkfullur af fjölbreyttum verkum.
Handverkstjaldið undir bárujárnsþak
Hið margrómaða handverkstjald flyst undir bárujárnsþak þessa Ljósanótt þar sem ekki er útlit fyrir gott veður til að tjalda. Við deyjum þó ekki ráðalaus heldur færum handverksmarkaðinn inn í SBK húsið í Grófinni 2. Þar lofum við frábærri markaðsstemningu.
Tjald handverksfólks verður á sínum stað líkt og venjulega á Ljósanótt.
Í handverkstjaldinu er seldur allskyns varningur handverksfólks en tjaldið verður opið alla helgina.
Tufti er risastórt tröll sem mun heiðra okkur með nærveru sinni á Ljósanótt. Hann verður á vappi um hátíðarsvæðið frá kl. 14:30-16:30 á laugardeginum.
Elísabet Ásberg List.
Hlakka til að taka á móti ykkur í sögulega Fischerhúsinu að Hafnargötu 2.
Duus handverk selur fallegt Íslenskt handverk frá 25 listamönnum. Í tilefni af Ljósanótt verðum við með 10% afslátt af vörunum okkar.
Við erum með fjölbreytt úrval af handverki og auðvelt að finna minnistæða gjöf.
Verið velkomin 🥰
Heimur skilningavitana mun opnast fyrir þau yngstu á Ljósanótt, skynjunarbraut úr ýmsum efnum og áferð.
Börnin geta orðið smá skítug í skynjunarbrautinni.
Einnig verða sápukúlur og litríkur blöðrudýragarður .
Hið árlega morgunverðarhlaðborð körfunnar verður haldið í Blue Höllinni á Sunnubraut milli 10:00 og 13:00 laugardaginn 2. september. Gómsætur matur á góðu verði.
Fullorðnir - 3.000 kr.
12 ára og yngri - 1.000 kr.
Frábæru flamingoknaparnir taka þátt í árgangagöngunni til að gleðja gesti og gangandi.
Á sýningu Gunnhildar Þórðardóttur, Bland í poka, á Ljósanótt 2023 eru bæði tví- og þrívíð verk og ný verk í bland við gömul. Auk þess mun listamaðurinn vera með ljóðabækur sem hún hefur gefið út og lesa vel valin ljóð.
Listaverk Gunnhildar fjalla oft um heimspekileg fyrirbæri en í listaverkum sínum túlkar hún vangaveltur sínar um lífið og tilveruna auk þess sem hringrásarhagkerfið hefur alltaf verið ofarlega á baugi í hennar verkum enda mikill umhverfissinni.
Öll verkin á sýningunni eru einnig gerð úr afskurði úr hinum ýmsa efniviði t.d. timbri eða úr hlutum sem fá nýtt hlutverk s.s. gömul húsgögn eða listaverk.
Allir velkomnir.
Akríl málverk af konum eftir Halldóru Sif
Duus Safnahús iða af lífi alla Ljósanæturhátíðina með fjölbreyttum sýningum og uppákomum.
Nýir tónleikar hefjast á hálftímafresti allan laugardaginn og þar koma fram okkar glæsilegu menningarhópar, kórar, söngsveitir og fleira listafólk.
Kl. 14:30 Félag harmonikuunnenda í Gryfju
Kl. 15:00 Kvennakór Suðurnesja í Bíósal
Kl. 15:30 Söngsveitin Víkingar í Gryfju
Kl. 16:00 Karlakór Keflavíkur í Bíósal
Kl. 16:30 Alexandra Chernyshova, Aríur úr óperunni „Skáldið og Biskupsdóttirin“ í Bíósal
Ljósmyndasýning eftir Þórdísi Erlu Ágústsdóttur
Of ung fyrir krabbamein? Frásögn um baráttu Sóleyjar
Þórdís Erla ljósmyndari og Sóley Björg flugmaður og flugkennari hjá Atlanta, ættuð frá Suðurnesjunum, taka á móti ykkur á opnun ljósmyndasýningar sem hefur farið hringferð um Ísland og verður sýnd í síðasta skiptið á Ljósanótt! Ljósmyndasýningin varð til í samvinnu þeirra tveggja og Brakkasamtakanna.
Sóley Björg Ingibergsdóttir greindist með brjóstakrabbamein aðeins 26 ára gömul. Sóleyju datt í hug að athuga hvort hún hefði BRCA2 meinvaldandi breytingu sem eykur líkur á krabbameini þegar Íslensk erfðagreining opnaði aðgang að þeim upplýsingum. Hún var 25 ára á þessum tíma og ekki þekkt áhætta um krabbamein í fjölskyldu Sóleyjar. Í kjölfar niðurstöðu greiningarinnar um að vera BRCA arfberi hélt Sóley að hún myndi byrja í reglulegu eftirliti en var sagt að hafa ekki áhyggjur og koma aftur eftir fimm ár. Tæpum tveimur árum síðar finnur Sóley Björg sjálf hnút í brjóstinu og greinist í kjölfarið með brjóstakrabbamein. Hún undirgengst lyfjameðferð, tvöfalt brjóstnám og geislameðferð.
Ljósmyndasýningin er haldin til vitundarvakningar fyrir bæði almenning og þá sem ákveða umgjörð og stefnu heilbrigðiskerfisins fyrir fólk með meinvaldandi breytingu. Hér er fjallað um unga konu sem samkvæmt innsæi sínu fór í það að sækjast eftir athugun á því hvort hún væri með BRCA breytingu í geni og greinist í kjölfarið með krabbamein. Markmiðið með sýningunni er að vekja athygli á stöðu arfbera. Einnig að upplýsa og fræða og hvetja til áframhaldandi umræðu og rannsókna á sviðinu. Síðast en ekki síst er markmiðið að vekja athygli á arfgengum krabbameinum á Ísland og mikilvægi erfðaprófunar og þekkingu um breytingar sem valda aukinni áhættu.
Myndefni ljósmynda sýningarinnar er dramatískt og það er ekki reynt að komast hjá því þar sem ætlunin er að undirstrika það hvernig lífið með BRCA getur umbylt lífi fólks. Sóley Björg er hugrökk ung kona sem er tilbúin til að segja og sýna sögu sína til að vekja athygli á þessu mikilvæga málefni.
Veltibíllinn verður staðsettur á Tjarnargötunni fyrir framan Bústoð og Fernandos.
Ókeypis - og allir velkomnir!
Veltibíllinn er í boði Sjóvá!
Lára og Ljónsi syngja og skemmta börnum í Stapa í Hljómahöll.
Að skemmtun lokinni hefst dagskrá í Skrúðgarðnum í Keflavík.
Keflvíkingurinn og DJ-inn Ragga Holm þeytir skífum á svölum við Hafnargötu 27a og heldur gestum og gangandi í góðu stuði.
Listasýning og opin vinnustofa hjá Ásdísi Erlu (diserla).
Nýjar áskoranir, ný hlutverk og áhugamál sameina konur á miðjum aldri. Á listasýningunni KONUR eiga þessar konur sameiginlegt að lifa lífinu á húmorískum nótum í vatnslitamyndum Ásdísar.
Á vinnustofunni verða Jólakonurnar-dagatal sem nýkomið er úr prentun til sölu sem og vinsælu tækifæriskerti Ásdísar m. a. Þakklætiskerti, vináttukerti og jólakerti.
Hvað eiga pennar, plastpokar, bíóprógrömm, servíettur og eldfæri sameiginlegt?
Þetta eru allt smáhlutir sem hafa verið framleiddir með ákveðið notagildi í huga. Þegar þeir hafa lokið hlutverki sínu enda þeir oftar en ekki í ruslinu. Til eru þeir sem hafa þó einsett sér að safna slíkum hlutum með það markmið að eignast sem flesta og af mismunandi gerðum. Á sýningunni má sjá smáhluti sem hafa borist Byggðasafni Reykjanesbæjar sem heildstæð einkasöfn eða hluti af öðrum gjöfum.
Annað atriði sem þessir smáhlutir eiga sameiginlegt er að þeir voru fjöldaframleiddir á árum áður en eru margir fágætari í dag. Stór hluti er merktur fyrirtækjum eða vörum og enda voru þeir ýmist gefnir, látnir fylgja með öðrum vörum eða seldir vægu verði. Hér gefst því tækifæri til að virða rifja upp liðna tíð og virða fyrir sér hvernig myndskreytingar og vörumerki hafa breyst. Elstu munirnir eru frá þriðja áratug 20. aldar en þeir yngstu aðeins nokkurra ára eða áratuga gamlir.
Byggðasafn Reykjanesbæjar hefur sýningar í Bryggjuhúsi Duus safnahúsa, Duusgötu 2-8, 230 Reykjanesbæ. Opið er alla daga frá 12 – 17.
Pakkið í Svarta Pakkhúsinu sýnir málverk og skúlptúr.
Listamenn eru: Halla Harðardóttir, Bjarnveig Björnsdóttir, Bragi Einarsson, Seweryn Chwala, Jóhann Maríusson og Þóra Jóna Dagbjartsdóttir.
Myndefni sýnt á skjavarpa um sögu
Keflavíkur á útisvæði við Svarta Pakkhúsið.
Ljósanæturball Babies Flokksins á Paddy's í boði Egils Gull.
Heimastrákarnir í Nostalgíu hita upp frá um miðnætti.
Miðaverð: 3500kr í forsölu og 4500kr við hurð.
Miðasala fer fram í Stubb appinu.
https://stubb.is/events/ykpwKo
Páll Óskar kynnir:
Pallaball á Ljósanótt
Páll Óskar mætir á Ljósanótt og verður með Pallaball í Stapanum laugardagskvöldið 2. september.
Palli stjórnar stuðinu pásulaust frá 22:30 til 03:00! Það stefnir því allt í maraþon stuðkeyrslu í Stapanum þar sem Palli þeytir skífum, spilar öll bestu partílög mannkynssögunnar og fær dragdrottningar í heimsókn til að trylla liðið. Þegar leikar standa sem hæst syngur Palli sjálfur sín eigin lög af sínum langa ferli, en fyrsta sólóplatan hans, "Stuð" kom út í nóvember 1993. Poppstjarnan fagnar því 30 ára starfsafmæli um þessar mundir og hefur aldrei verið betri, orkumeiri og síðast en ekki síst - gordjöss.
Miðaverð er 5500 kr. - Miðasala fer fram á Tix.is
Aldurstakmark 20 ára (sýna þarf löggild skilríki)
Dagbjört Magnúsdóttir verður með málverkasýningu.
Miðlar og heilarar verða á staðnum.
spá/miðlun/heilun kostar kr.2500.
Allir hjartanlega velkomnir, kaffi á könnuni.
Dagmar Róbertsdóttir (Dalla) Myndlist.
Tekur þátt í samsýningu á Park Inn
Boðið verður upp á léttar veitingar við opnunina á fimmtudeginum.
Edda Skúladóttir, hannar undir merkinu Fluga design sem er fata og fylgihlutalína fyrir konur á öllum aldri. Hún lauk sveinsprófi klæðskera 1996 og er með 9 ára starfsreynslu í tískubransanum í Los Angeles.Flutti heim til íslands 2005 og Fluga design varð til um 2011.
“Ég vinn mína hönnun má segja alla leið, þ.e hanna, geri snið og sauma allt sjálf."
Hún notar eingöngu gæðaefni og vinnur munstrin sjálf með handlitun og/eða handmálun en þannig verður hver og ein flík einstök.
Netverslun www.fluga.is
Tvær frábærar ævintýrapersónur úr Ævintýraskógi Leikhópsins Lottu skemmta börnum á sviðinu í Skrúðgarðinum.
Í fyrsta sinn á Ljósanótt tekur Keflvíkingurinn, Marta Eiríksdóttir, rithöfundur og jógakennari, þátt í samsýningu á ritverkum sínum.
Listakonurnar eru eftirfarandi:
Dagmar Róbertsdóttir. Myndlist.
Fjóla Jóns. Myndlist.
Íris Rós Söring. Myndlist.
María Arnardóttir. Maju Men.
Sigga Dís. Myndlist.
Sigrún Ýr. byKrummi.is
Boðið verður upp á léttar veitingar við opnunina á fimmtudeginum.
Taylors Tívolí verður á Ljósanótt með tívolítæki fyrir alla fjölskylduna, leiki, candyfloss og alvöru Tívolí stemmningu!
Leikfélag Keflavíkur býður hátíðargestum að labba um Frumleikhúsið.
Gamlir sýningarmunir og leikskrár verða til sýnis og börnin fá tækifæri til að máta búninga á sviðinu.
Er ekki tilvalið að skella sér á Brons eftir flugeldasýningu?
Hr. Hnetusmjör 23.30
Lexi Special þeytir skífum fram á nótt.
2.500-kr eftir kl.21.00
Aðeins selt við hurð
Komdu og kíktu á nýja matseðilinn okkar.
Við höfum opnað veitingastaðinn á Brons.
20 ára aldurstakmark
Brons, þar sem stemningunni er haldið á lofti
Rokksafn Íslands er frábært safn fyrir alla fjölskylduna. Þar geta gestir kynnt sér sögu íslenskrar popp og rokktónlistar á gagnvirkan hátt.
Á safninu er að finna tímalínu sem fjallar um íslenska popp og rokktónlist allt frá árinu 1835 til tónlistarmanna og hljómsveita á borð við Björk, Of Monsters and Men, Sigur Rós, Kaleo og fleiri.
Á safninu er að finna stórt og gagnvirkt sýningaratriði sem hylur stærsta vegg safnsins þar sem upplýsingum um íslenska tónlistarmenn er varpað á tólf metra breiðan vegg. Tilgangur atriðisins er að gera safngestum kleift að kafa dýpra í sögu þeirra listamanna sem fjallað er um í sýningaratriðinu en atriðið blandar saman skrifaðri sögu listamannanna ásamt ljósmyndum, myndböndum og tónlist. Safngesturinn velur sjálfur hvaða vínylplötu hann setur á fóninn og svo snýr hann plötunni sjálfur á meðan hann skoðar efnið sem tengist listamanninum.
Auk þess geta safnagestir prófað ýmis hljóðfæri svo sem rafmagnsgítar, bassa, trommur og sérhannaðan karókí-klefa þar sem gestir geta sungið ýmis lög.
Rokksafn Íslands er fyrir alla – bæði þá sem þekkja og elska íslenska tónlist og þá sem vilja fræðast betur um hana.
Safnið er opið alla daga frá 11:00-18:00.
Ókeypis aðgangur er á Rokksafn Íslands á meðan Ljósanæturhátíðinni stendur.
Sala á silkislæðum, mjúkum treflum og töskum með mynstrum úr íslenskri náttúru. Tækifæriskort og myndverk.
Tónleikar á Ljósanótt í Duus Safnahúsum (Bíósal)
2. september kl.16:30
Söngperlur úr Skáldið og Biskupsdóttirin
Flytjendur:
Alexandra Chernyshova – sópran og tónskáld
Lenka Mátéová – píanóleikari og orgelleikari
Guðrún Ásmundsdóttir – leikkona, rithöfundur og heiðurs gestur
Á tónleikununum munu gestir heyra aríur úr frumsömdu óperu Alexöndru Chernyshovu við handrit Guðrúnar Ásmundsdóttir „Skáldið og Biskupsdóttirin“.
Þetta er í fyrsta skipti sem óperan er kynnt í Reykjanesbæ og mikil ánægja hjá höfundum að gera þetta á Ljósanótt 2023.
Í byrjun þessa árs kom út nýr geisladískur með allri óperunni sem er skrifuð fyrir 11 einsöngvara, óperukór og hljómsveit. Í lok tónleikanna verður í boði að kaupa áritaðan geisladisk á sérstöku Ljósanæturtilboði.
Það er frítt inn og við hlökkum til að sjá sem flesta á meðan rúm Bíósals leyfir og eiga notalega stund með tónlist Alexöndru Chernyshovu og ljóðum eftir Hallgrím Pétursson, Guðnýju frá Klömbrum og Rúnar Kristjánsson.
Ljósmyndasýningin Paradís
Ljósmyndari Larz
Stemmingin í myndunum er ævintýraleg og eru flestar af íslenskri náttúru. Myndirnar reyna að fanga fegurð landins en líka hversu ógnvekjandi það getur verið. Túlkun þeirra er opin og í huga þess sem skoðar.
Kjarninn í sýningunni er að tengja við arfleið forfeðra, þar sem fjörugt ímyndunarafl mætti stórbrotinni náttúru og þjóðsögur urðu til. Myndirnar segja sögur.
Ljósmynda- og kvikmyndasýning - Óður til Reykjaness.
Sýning sem sýnir landslag og náttúru Reykjanes bæði í ljósmyndum og kvikmynd.
Hlakka til að sjá ykkur í gömlu dráttarbrautinn við Duus húsin.
Jón R. Hilmarsson - Ljósmyndari:
Jón er sjálfmenntaður íslenskur landslags- og náttúruljósmyndari á Íslandi. Hann byrjaði að taka ljósmyndun alvarlega árið 2007 og hefur hlotið alþjóðlega viðurkenningu fyrir verk sín. Myndir hans, sem sumar hafa hlotið alþjóðleg verðlaun, hafa verið birtar um allan heim í blöðum, tímaritum og ýmsum bókum.
Með mikilli ástríðu fyrir ljósmyndun og ferðalögum um Ísland reynir Jón að draga fram áhugavert landslag, náttúru og þekkt kennileiti. Oft er farið að nálgast viðfangsefnið í ljósaskiptunum en þá gerast oft ótrúlegir hluti í náttúrunni sem gefur myndunum fjölbreyttari umgjörð og litskrúðugri en venjulega.
Frá því Jón byrjaði að mynda íslenskt landslag og náttúru hefur hann haldið fjölda sýninga hér heima og erlendis - t.d. verið sýningu á opnunarkvöldi á "Norrænum vikum í St. Pétursborg". Hann hefur einnig gefið út nokkrar ljósmyndabækur.
Jón hefur haft mikinn áhuga á heimildarmyndagerð um landslag og náttúru Íslands og hefur m.a. gefið út kvikmynd um eldgos á Reykjanesi sem var sýnd í sjónvarpi og norðurljós á Íslandi - Magical Sky Iceland. Kvikmyndaverk hans hafa verið sýnd um allan heim, t.d. á listahátíð í Japan.
www.magicalskyiceland.com / www.iphotographiceland.com - jonhilmarsson.photography@gmail.com
Líf, gleði og ró er heiti sölusýningar hjá Drífu keramik í versluninni Bústoð. Þetta eru vegglistaverk sem saman standa af mörgum einstökum keramik og póstulíns hlutum, sem mynda ákveðna heild en geta líka staðið einir og sér. Áferð og litir tala sínu máli.
Verkin eru handuninn og eru einstök, innblásturinn kemur frá náttúrunni, lífinu og leiknum.
Í Fishershúsi er Tobba með sýningu á skúlptúr og myndlist. Óðinn, Þór, og Freyja birtast okkur ljóslifandi í koparvír og steypu.
Það er gaman að segja frá því að Tobba er með einkasýningu á myndlist og skúlptúr í höfuðborg Kína (26 júlí til 19 ágúst), sem hefur slegið í gegn og fengið frábærar viðtökur. Í tilkynningu frá sendiráði Íslands í Kína er sýning Tobbu sú fyrsta þar í landi í mörg ár.
Silfuhringir og mynt
Sýningin fjallar um stórkostlegar konur frá Reykjanesbæ og höfuðborgarsvæðinu sem vildu einbeita sér að eða bæta sjálfsviðurkenningu sína með því að sitja fyrir á myndlistarmyndum. Engin módelreynsla var nauðsynleg en allir þátttakendur höfðu áskorun, að hugsa um og nota einn fatnað að eigin vali fyrir myndalotuna sína.
25 konur svöruðu opnum símtölum sem birtar voru á samfélagsmiðlum, 18 myndalotur voru loksins gerðar og nokkrir áhugaverðir hlutir voru notaðir sem þættir í lotunni. Mjög jákvæð viðbrögð fengust frá öllum þátttakendum og þessar einkamyndastundir hjálpuðu þeim í raun að bæta sjálfsálit sitt og sjálfsviðurkenningu.
Verkefnið var unnið í Keflavík frá maí til júlí 2023 og var styrkt af Menningarsjóði Reykjanesbæjar.
Blaut blágerð er ljósmyndasýning búin til með sólarljósi á vatnslitapappírsblöðum. Það líkist oft vatnslitamálun. Allar myndir eru einstakar, jafnvel nota sömu þætti eða útlit - það er ekki hægt að gera tvö nákvæmlega eins afrit.
Leyfðu mér að bjóða í heiminn minn af blómablómaprentun, vona að þú hafir gaman af því. Sjáumst í Fischer-húsinu, Adam Dereszkiewicz
• Íslensk hönnun og framleiðsla • handgerð í litlu magni •
Reykjavík Candle Co. byKrummi var stofnað haustið 2021 með því markmiði að framleiða hrein hágæða ilmkerti úr bestu fáanlegu hráefnum til kertagerðar en kertin eru hvorki skaðleg heilsu né umhverfinu og eru ekki prófuð á dýrum
Maju Men heklað skart tekur þátt í
samsýningu með listakonum þetta árið. Maja verður að vanda með mikið úrval af hálsmenum, armböndum, lyklakippum ofl.
Sjón er söguríkari.
Boðið verður upp á léttar veitingar við
opnunina á fimmtudeginum.
Hlakka til að taka á móti ykkur á Park Inn By Radisson.
Boðið verður upp á léttar veitingar við opnunina á fimmtudeginum.
AtlantikH
er vistvæn Islensk hönnun sem framleiðir hágæða töskur og belti úr Islensku lambaleðri og fiskroði.
Óli prik verður á handverksmarkaðinum sem hefur verið færður inn í SBK verkstæðishúsið sem er við gömlu dráttarbrautina við smábátahöfnina, opið verður fimmtud - sunnud.
Mikið úrval af húfum, buffalóum og fl. Nafnamerkt á staðnum
Enn og aftur er Tækifæris Tattoo mætt á staðinn.
Skemmtun fyrir alla fjölskylduna.
Ég er að gera mót af höndum fólks með sílíkonblöndu sem er svo fyllt með gifsblöndu og út kemur nákvæm eftirlíking af höndum viðkomandi.
Facebook linkur:
https://www.facebook.com/profile.php?id=100090049419196