Starfsfólk Ráðhússins býður til söngstundar í Ráðhúsinu fimmtudaginn 31. ágúst kl. 12:15 til 12:45.
Bæjarstjórinn stýrir stundinni og dregur vafalaust upp fiðluna góðu en hann sendir út boð til allra aflögufærra hljóðfæraleikara um að mæta á staðinn og „djamma“ með. Við hin sem ekki getum spilað syngjum með eins og enginn sé morgundagurinn.
Söngtextar munu liggja frammi svo það er bara að mæta á staðinn og njóta stundarinnar.
Öll velkomin á meðan húsrúm leyfir.
Handverkstjaldið undir bárujárnsþak
Hið margrómaða handverkstjald flyst undir bárujárnsþak þessa Ljósanótt þar sem ekki er útlit fyrir gott veður til að tjalda. Við deyjum þó ekki ráðalaus heldur færum handverksmarkaðinn inn í SBK húsið í Grófinni 2. Þar lofum við frábærri markaðsstemningu.
Tjald handverksfólks verður á sínum stað líkt og venjulega á Ljósanótt.
Í handverkstjaldinu er seldur allskyns varningur handverksfólks en tjaldið verður opið alla helgina.
Ávallt er mikið um dýrðir seinnipart fimmtudags og fram á kvöld þegar listsýningar opna hver á fætur annarri víðs vegar um bæinn.
Mikil stemning skapast í bænum á þessu kvöldi, verslanir eru með góð tilboð og heimamenn og þeirra gestir flykkjast á sýningarnar og eiga saman frábæra kvöldstund. Sýningarnar standa svo opnar fram á sunnudag.
Elísabet Ásberg List.
Hlakka til að taka á móti ykkur í sögulega Fischerhúsinu að Hafnargötu 2.
Duus handverk selur fallegt Íslenskt handverk frá 25 listamönnum. Í tilefni af Ljósanótt verðum við með 10% afslátt af vörunum okkar.
Við erum með fjölbreytt úrval af handverki og auðvelt að finna minnistæða gjöf.
Verið velkomin 🥰
Hljómahöll hefur ákveðið að endurvekja tónleikaröðina Trúnó en tónleikaröðin hefur haldið sig til hlés frá því að heimsfaraldurinn skall á.
Á trúnó-tónleikum í Hljómahöll fá gestir að upplifa mikla nánd við listamennina. Tónleikarnir fara fram í Bergi sem rúmar um 100 gesti og er þó engu til sparað þegar kemur að hljóðgæðum eða lýsingu á tónleikunum. Mætti jafnvel lýsa þeim sem stórtónleikum í litlum sal.
Sú hljómsveit sem ríður á vaðið ætti að vera bæjarbúum og öllum landsmönnum kunnug en það er hin frábæra hljómsveit Valdimar.
Sveitin mun koma fram á tvennum tónleikum miðvikudagskvöldið 30. ágúst og fimmtudagskvöldið 31. ágúst á meðan Ljósanótt stendur yfir en þetta verður í fyrsta sinn sem sveitin kemur fram á tónleikaröðinni.
Á fyrri trúnó-tónleikum sveitarinnar mun hljómsveitin leika öll lögin af plötunni sinni Undraland sem kom út árið 2010. Á seinni tónleikum sveitarinnar mun hljómsveitin taka fyrir plötuna Um stund sem kom út árið 2012.
Húsið opnar kl. 19:00 og tónleikar hefjast kl. 20:00.
Söng- og leikkonan Jana María leiðir áhorfendur í gegnum tónlistina sem tengdi Suðurnesin við veru Varnarliðsins ásamt píanóleikaranum Vigni Þór Stefánssyni.
Nærvera bandaríska hersins á Keflavíkurflugvelli hafði óneitanlega áhrif á líf og störf Suðurnesjamanna á seinni hluta síðustu aldar. Menningin í Keflavík tók stórum breytingum, ekki síst tónlistarlega, því herinn þurfti jú hljómsveitir og íslenskar söngkonur til að koma fram á klúbbunum.
Á efnisskrá má meðal annars finna tónlist þekkta í flutningi Burt Bacharach, Ellýjar og Villa Vill, Frank Sinatra, Caterina Valente, Hljóma og fleiri.
Hlý og notaleg kvöldstund með Jönu Maríu og Vigni Þór í Stapa, fimmtudagskvöldið 31.ágúst kl.20. Miðaverð 4300, miðasala á tix.is.
Í þessari listasmiðju gefst gestum og gangandi tækifæri á því að taka þátt á seinustu listasýningu Gallerý Grind sumarið 2023.
Fyrir utan galleríið er aðstaða fyrir gesti til þess að skapa sín listaverk sem síðan eru hengd upp í galleríinu sjálfu þegar verkinu hefur verið lokið. Efni og áhöld eru á staðnum frí til notkunar og sömuleiðis verður listamaður á svæðinu til aðstoðar.
Samhliða listasmiðjunni verður hoppukastali og leikir í boði fyrir fjölskyldur og gesti. Einnig er setuaðstaða þar sem hægt er að slaka á og sötra á kaffi eða svala.
Fimmtudaginn 31. ágúst kl. 17.30
verður
formleg opnun á sýningu sem ber heitið Horfin hús – Horfinn heimur
í
Átthagastofu Bókasafnins.
Á sýningunni má finna ljósmyndir af gömlum húsum og mannlífi á slóðum þar sem Bókasafnið er til húsa í dag, heimur sem er ýmist horfinn eða á hröðu undanhaldi nýrra tíma.
Óhætt er að segja að húsin segja sögu sem líkur aldrei meðan þau standa og minnig þeirra lifir í ljósmyndunum sem varðveittar eru. Myndirnar eru í eigu Byggðasafns Reykjanesbæjar og við hvetjum bæjarbúa til að bæta við upplýsingum ef þeir þekkja til, því eitthvað af upplýsingum vantar við ljósmyndirnar.
Áhugaverð sýning sem þú mátt alls ekki láta
fram hjá þér fara!
Sundlaugapartý fyrir 5.-7. bekk verður í Vatnaveröld á fimmtudeginum á Ljósanótt klukkan 18:30-20:00.
Þrautabraut sundlaugarinnar verður opin öllum og glaðningur verður í boði fyrir öll sem mæta.
Ljóðagjörningur kl. 17.00 í Miðju bókasafnsins. „Allir eiga sér sögu. Öll búum við yfir kærleika og höfum upplifað ástir og sorgir, hamingju og gleði.“
Eyrún Ósk Jónsdóttir flytur ljóð úr ljóðabók sinni Í svartnættinu miðju skín ljós við trommundirleik Akeem Richards sem spilar á afrískar trommur. Öll ljóðin byggja á persónulegum frásögnum fólks. Verkið er seiðandi og áhrifamikið og fjallar um málefni samtímans. Gjörningurinn tekur um 20 mínútur.
Öll velkomin og aðgangur er ókeypis.
Hvar: Bókasafn Reykjanesbæjar | Miðjan
Hvenær: 31. ágúst kl. 17.00
Eyrún Ósk Jónsdóttir á að baki feril sem rithöfundur, leikari og friðarsinni.
Akeem Richard er þekktur hér á landi fyrir þátttöku sína úr stjórnmálum, menningarviðburðum, fjölmenningarviðburðum og fyrir störf sín í þágu fjölmenningar.
Ókeypis viðburður!
Á sýningu Gunnhildar Þórðardóttur, Bland í poka, á Ljósanótt 2023 eru bæði tví- og þrívíð verk og ný verk í bland við gömul. Auk þess mun listamaðurinn vera með ljóðabækur sem hún hefur gefið út og lesa vel valin ljóð.
Listaverk Gunnhildar fjalla oft um heimspekileg fyrirbæri en í listaverkum sínum túlkar hún vangaveltur sínar um lífið og tilveruna auk þess sem hringrásarhagkerfið hefur alltaf verið ofarlega á baugi í hennar verkum enda mikill umhverfissinni.
Öll verkin á sýningunni eru einnig gerð úr afskurði úr hinum ýmsa efniviði t.d. timbri eða úr hlutum sem fá nýtt hlutverk s.s. gömul húsgögn eða listaverk.
Allir velkomnir.
Setning Ljósanætur 2023 verður haldin í Skrúðgarðinum í Keflavík.
Elstu nemendur í leikskólum Reykjanesbæjar ásamt nemendum í 3. bekk og 7. bekk í grunnskólum Reykjanesbæjar eru viðstödd setninguna.
Dagskrá
Ljósanæturfáninn dreginn að húni
Kjartan Már Kjartansson setur hátíðina
Friðrik Dór kemur öllum í Ljósanæturstuð!
Akríl málverk af konum eftir Halldóru Sif
Hvað eiga pennar, plastpokar, bíóprógrömm, servíettur og eldfæri sameiginlegt?
Þetta eru allt smáhlutir sem hafa verið framleiddir með ákveðið notagildi í huga. Þegar þeir hafa lokið hlutverki sínu enda þeir oftar en ekki í ruslinu. Til eru þeir sem hafa þó einsett sér að safna slíkum hlutum með það markmið að eignast sem flesta og af mismunandi gerðum. Á sýningunni má sjá smáhluti sem hafa borist Byggðasafni Reykjanesbæjar sem heildstæð einkasöfn eða hluti af öðrum gjöfum.
Annað atriði sem þessir smáhlutir eiga sameiginlegt er að þeir voru fjöldaframleiddir á árum áður en eru margir fágætari í dag. Stór hluti er merktur fyrirtækjum eða vörum og enda voru þeir ýmist gefnir, látnir fylgja með öðrum vörum eða seldir vægu verði. Hér gefst því tækifæri til að virða rifja upp liðna tíð og virða fyrir sér hvernig myndskreytingar og vörumerki hafa breyst. Elstu munirnir eru frá þriðja áratug 20. aldar en þeir yngstu aðeins nokkurra ára eða áratuga gamlir.
Sýningin verður opnuð fimmtudaginn 31. ágúst kl. 18 í Duus safnahúsum. Opnunin er hluti af dagskrá Ljósanætur. Verið öll velkomin.
Byggðasafn Reykjanesbæjar hefur sýningar í Bryggjuhúsi Duus safnahúsa, Duusgötu 2-8, 230 Reykjanesbæ. Opið er alla daga frá 12 – 17.
Listasýning og opin vinnustofa hjá Ásdísi Erlu (diserla).
Nýjar áskoranir, ný hlutverk og áhugamál sameina konur á miðjum aldri. Á listasýningunni KONUR eiga þessar konur sameiginlegt að lifa lífinu á húmorískum nótum í vatnslitamyndum Ásdísar.
Á vinnustofunni verða Jólakonurnar-dagatal sem nýkomið er úr prentun til sölu sem og vinsælu tækifæriskerti Ásdísar m. a. Þakklætiskerti, vináttukerti og jólakerti.
Hvað eiga pennar, plastpokar, bíóprógrömm, servíettur og eldfæri sameiginlegt?
Þetta eru allt smáhlutir sem hafa verið framleiddir með ákveðið notagildi í huga. Þegar þeir hafa lokið hlutverki sínu enda þeir oftar en ekki í ruslinu. Til eru þeir sem hafa þó einsett sér að safna slíkum hlutum með það markmið að eignast sem flesta og af mismunandi gerðum. Á sýningunni má sjá smáhluti sem hafa borist Byggðasafni Reykjanesbæjar sem heildstæð einkasöfn eða hluti af öðrum gjöfum.
Annað atriði sem þessir smáhlutir eiga sameiginlegt er að þeir voru fjöldaframleiddir á árum áður en eru margir fágætari í dag. Stór hluti er merktur fyrirtækjum eða vörum og enda voru þeir ýmist gefnir, látnir fylgja með öðrum vörum eða seldir vægu verði. Hér gefst því tækifæri til að virða rifja upp liðna tíð og virða fyrir sér hvernig myndskreytingar og vörumerki hafa breyst. Elstu munirnir eru frá þriðja áratug 20. aldar en þeir yngstu aðeins nokkurra ára eða áratuga gamlir.
Byggðasafn Reykjanesbæjar hefur sýningar í Bryggjuhúsi Duus safnahúsa, Duusgötu 2-8, 230 Reykjanesbæ. Opið er alla daga frá 12 – 17.
Pakkið í Svarta Pakkhúsinu sýnir málverk og skúlptúr.
Listamenn eru: Halla Harðardóttir, Bjarnveig Björnsdóttir, Bragi Einarsson, Seweryn Chwala, Jóhann Maríusson og Þóra Jóna Dagbjartsdóttir.
Myndefni sýnt á skjavarpa um sögu
Keflavíkur á útisvæði við Svarta Pakkhúsið.
Þegar verslanir loka á Hafnargötunni ætla Eva Ruza og Hjálmar Örn að leiða mannskapinn í pub quiz.
Glæsilegir vinningar í boði Gull og fleiri vina Paddy's.
4 saman í liði og borðapantanir fara fram í Stubb appinu.
Takmarkað framboð af pöntuðum borðum en þó þau seljist upp verður pláss fyrir walk-ins.
https://stubb.is/events/oqDjgy
Dagmar Róbertsdóttir (Dalla) Myndlist.
Tekur þátt í samsýningu á Park Inn
Boðið verður upp á léttar veitingar við opnunina á fimmtudeginum.
Við hefjum þessa Ljósanæturhelgi á Brons með algjörri neglu.
Konukvöld á Brons
Jón Jónsson kl. 21.30
Siddi Trúbadór lokar kvöldinu.
Mojitoseðillinn á tilboði allt kvöldið.
2.500 kr- eftir kl. 21.00
Aðeins selt við hurð
Komdu og kíktu á nýja matseðilinn okkar.
Við höfum opnað veitingastaðinn á Brons.
20 ára aldurstakmark
Brons, þar sem stemningunni er haldið á lofti
Edda Skúladóttir, hannar undir merkinu Fluga design sem er fata og fylgihlutalína fyrir konur á öllum aldri. Hún lauk sveinsprófi klæðskera 1996 og er með 9 ára starfsreynslu í tískubransanum í Los Angeles.Flutti heim til íslands 2005 og Fluga design varð til um 2011.
“Ég vinn mína hönnun má segja alla leið, þ.e hanna, geri snið og sauma allt sjálf."
Hún notar eingöngu gæðaefni og vinnur munstrin sjálf með handlitun og/eða handmálun en þannig verður hver og ein flík einstök.
Netverslun www.fluga.is
Í fyrsta sinn á Ljósanótt tekur Keflvíkingurinn, Marta Eiríksdóttir, rithöfundur og jógakennari, þátt í samsýningu á ritverkum sínum.
Listakonurnar eru eftirfarandi:
Dagmar Róbertsdóttir. Myndlist.
Fjóla Jóns. Myndlist.
Íris Rós Söring. Myndlist.
María Arnardóttir. Maju Men.
Sigga Dís. Myndlist.
Sigrún Ýr. byKrummi.is
Boðið verður upp á léttar veitingar við opnunina á fimmtudeginum.
Taylors Tívolí verður á Ljósanótt með tívolítæki fyrir alla fjölskylduna, leiki, candyfloss og alvöru Tívolí stemmningu!
Leikfélag Keflavíkur heldur upp á kaffihúsakvöld.
Open mic night og það er í boði að syngja karaoke, vera með uppistand, taka lagið eða annað skemmtilegt sem ykkur dettur í hug.
Skemmtileg stund í Frumleikhúsinu.
Rokksafn Íslands er frábært safn fyrir alla fjölskylduna. Þar geta gestir kynnt sér sögu íslenskrar popp og rokktónlistar á gagnvirkan hátt.
Á safninu er að finna tímalínu sem fjallar um íslenska popp og rokktónlist allt frá árinu 1835 til tónlistarmanna og hljómsveita á borð við Björk, Of Monsters and Men, Sigur Rós, Kaleo og fleiri.
Á safninu er að finna stórt og gagnvirkt sýningaratriði sem hylur stærsta vegg safnsins þar sem upplýsingum um íslenska tónlistarmenn er varpað á tólf metra breiðan vegg. Tilgangur atriðisins er að gera safngestum kleift að kafa dýpra í sögu þeirra listamanna sem fjallað er um í sýningaratriðinu en atriðið blandar saman skrifaðri sögu listamannanna ásamt ljósmyndum, myndböndum og tónlist. Safngesturinn velur sjálfur hvaða vínylplötu hann setur á fóninn og svo snýr hann plötunni sjálfur á meðan hann skoðar efnið sem tengist listamanninum.
Auk þess geta safnagestir prófað ýmis hljóðfæri svo sem rafmagnsgítar, bassa, trommur og sérhannaðan karókí-klefa þar sem gestir geta sungið ýmis lög.
Rokksafn Íslands er fyrir alla – bæði þá sem þekkja og elska íslenska tónlist og þá sem vilja fræðast betur um hana.
Safnið er opið alla daga frá 11:00-18:00.
Ókeypis aðgangur er á Rokksafn Íslands á meðan Ljósanæturhátíðinni stendur.
Sala á silkislæðum, mjúkum treflum og töskum með mynstrum úr íslenskri náttúru. Tækifæriskort og myndverk.
Ljósmyndasýningin Paradís
Ljósmyndari Larz
Stemmingin í myndunum er ævintýraleg og eru flestar af íslenskri náttúru. Myndirnar reyna að fanga fegurð landins en líka hversu ógnvekjandi það getur verið. Túlkun þeirra er opin og í huga þess sem skoðar.
Kjarninn í sýningunni er að tengja við arfleið forfeðra, þar sem fjörugt ímyndunarafl mætti stórbrotinni náttúru og þjóðsögur urðu til. Myndirnar segja sögur.
Ljósmynda- og kvikmyndasýning - Óður til Reykjaness.
Sýning sem sýnir landslag og náttúru Reykjanes bæði í ljósmyndum og kvikmynd.
Hlakka til að sjá ykkur í gömlu dráttarbrautinn við Duus húsin.
Jón R. Hilmarsson - Ljósmyndari:
Jón er sjálfmenntaður íslenskur landslags- og náttúruljósmyndari á Íslandi. Hann byrjaði að taka ljósmyndun alvarlega árið 2007 og hefur hlotið alþjóðlega viðurkenningu fyrir verk sín. Myndir hans, sem sumar hafa hlotið alþjóðleg verðlaun, hafa verið birtar um allan heim í blöðum, tímaritum og ýmsum bókum.
Með mikilli ástríðu fyrir ljósmyndun og ferðalögum um Ísland reynir Jón að draga fram áhugavert landslag, náttúru og þekkt kennileiti. Oft er farið að nálgast viðfangsefnið í ljósaskiptunum en þá gerast oft ótrúlegir hluti í náttúrunni sem gefur myndunum fjölbreyttari umgjörð og litskrúðugri en venjulega.
Frá því Jón byrjaði að mynda íslenskt landslag og náttúru hefur hann haldið fjölda sýninga hér heima og erlendis - t.d. verið sýningu á opnunarkvöldi á "Norrænum vikum í St. Pétursborg". Hann hefur einnig gefið út nokkrar ljósmyndabækur.
Jón hefur haft mikinn áhuga á heimildarmyndagerð um landslag og náttúru Íslands og hefur m.a. gefið út kvikmynd um eldgos á Reykjanesi sem var sýnd í sjónvarpi og norðurljós á Íslandi - Magical Sky Iceland. Kvikmyndaverk hans hafa verið sýnd um allan heim, t.d. á listahátíð í Japan.
www.magicalskyiceland.com / www.iphotographiceland.com - jonhilmarsson.photography@gmail.com
Líf, gleði og ró er heiti sölusýningar hjá Drífu keramik í versluninni Bústoð. Þetta eru vegglistaverk sem saman standa af mörgum einstökum keramik og póstulíns hlutum, sem mynda ákveðna heild en geta líka staðið einir og sér. Áferð og litir tala sínu máli.
Verkin eru handuninn og eru einstök, innblásturinn kemur frá náttúrunni, lífinu og leiknum.
Í Fishershúsi er Tobba með sýningu á skúlptúr og myndlist. Óðinn, Þór, og Freyja birtast okkur ljóslifandi í koparvír og steypu.
Það er gaman að segja frá því að Tobba er með einkasýningu á myndlist og skúlptúr í höfuðborg Kína (26 júlí til 19 ágúst), sem hefur slegið í gegn og fengið frábærar viðtökur. Í tilkynningu frá sendiráði Íslands í Kína er sýning Tobbu sú fyrsta þar í landi í mörg ár.
Silfuhringir og mynt
Vefverslarnirnar LIND Scandinavia og Noel Studios verða með opna verslun á Ljósanótt. Báðar verslanir bjóða upp á 10% Ljósanætur afslátt.
Stað- og tímasetning: Í húsnæði Eignamiðlunar Suðurnesja, Hafnargötu 50, fimmtudaginn 31. ágúst á milli kl 17:00 - 22:00.
https://lindscandinavia.is/
LIND Scandinavia býður upp á veggspjöld í skandinavískum stíl með íslenskum orðskýringum, tilvitnunum og merkingum íslenskra nafna. Hugmyndin er að varðveita íslenskt tungumál og um leið ylja þeim sem þér þykir vænt um með fallegum orðum.
https://noelstudios.is/
Noel Studios býður upp á vandaðan og þægilegan fatnað, með áherslu á jogging galla. Gallarnir hafa notið mikilla vinsælda, enda eru þeir einstaklega mjúkir, hlýir og góðir fyrir veturinn framundan.
Sýningin fjallar um stórkostlegar konur frá Reykjanesbæ og höfuðborgarsvæðinu sem vildu einbeita sér að eða bæta sjálfsviðurkenningu sína með því að sitja fyrir á myndlistarmyndum. Engin módelreynsla var nauðsynleg en allir þátttakendur höfðu áskorun, að hugsa um og nota einn fatnað að eigin vali fyrir myndalotuna sína.
25 konur svöruðu opnum símtölum sem birtar voru á samfélagsmiðlum, 18 myndalotur voru loksins gerðar og nokkrir áhugaverðir hlutir voru notaðir sem þættir í lotunni. Mjög jákvæð viðbrögð fengust frá öllum þátttakendum og þessar einkamyndastundir hjálpuðu þeim í raun að bæta sjálfsálit sitt og sjálfsviðurkenningu.
Verkefnið var unnið í Keflavík frá maí til júlí 2023 og var styrkt af Menningarsjóði Reykjanesbæjar.
Blaut blágerð er ljósmyndasýning búin til með sólarljósi á vatnslitapappírsblöðum. Það líkist oft vatnslitamálun. Allar myndir eru einstakar, jafnvel nota sömu þætti eða útlit - það er ekki hægt að gera tvö nákvæmlega eins afrit.
Leyfðu mér að bjóða í heiminn minn af blómablómaprentun, vona að þú hafir gaman af því. Sjáumst í Fischer-húsinu, Adam Dereszkiewicz
• Íslensk hönnun og framleiðsla • handgerð í litlu magni •
Reykjavík Candle Co. byKrummi var stofnað haustið 2021 með því markmiði að framleiða hrein hágæða ilmkerti úr bestu fáanlegu hráefnum til kertagerðar en kertin eru hvorki skaðleg heilsu né umhverfinu og eru ekki prófuð á dýrum
Maju Men heklað skart tekur þátt í
samsýningu með listakonum þetta árið. Maja verður að vanda með mikið úrval af hálsmenum, armböndum, lyklakippum ofl.
Sjón er söguríkari.
Boðið verður upp á léttar veitingar við
opnunina á fimmtudeginum.
Hlakka til að taka á móti ykkur á Park Inn By Radisson.
Boðið verður upp á léttar veitingar við opnunina á fimmtudeginum.
Í tilefni Ljósanætur verður opið hús í vöruhúsinu okkar í Grófinni 10a.
Verið hjartanlega velkomin til okkar í stuð og stemningu, léttar veitingar og drykki fimmtudagskvöldið 31.ágúst frá kl.18-22.
Unga listakonan Agnes Ynja Magnúsdóttir verður með myndlistarsýningu á staðnum og býður gestum og gangandi upp á léttar veitingar milli kl.15-18.
15% afsláttur af öllum vörum.
AtlantikH
er vistvæn Islensk hönnun sem framleiðir hágæða töskur og belti úr Islensku lambaleðri og fiskroði.
Stúdíó ART CASE - Marta Ryba
Hafnargata 15, 230 Keflavík
- Málverk - Akril á striga
- Teiknað á pappír
- Hágæða listaverkaeftirprent
- Verk til sölu
Listamaður
Marta Ryba hefur starfað við eigin list síðan 2011 og er enn að læra og þróast. Hún er tungumálakennari.
Sjá meira inni á
www.marta-ryba.art
Verið hjartanlega velkomin!
Instagram: marta_ryba_art_case
Facebook: artcasemartaryba
Tiktok: @martarybaart
Farandprentsmiðjan “Brumm Brumm“ býður gestum á silkiþrykks- og myndlistarsýningu í gömlum húsbíl sem hefur verið innréttaður sem prentverkstæði og gallerí. Gestir geta fylgst með ferli silkiþrykks og séð myndir sem við höfum verið að prenta og búa til í húsbílnum núna í sumar.
www.instagram.com/brummbrumm_rvk/
Brumm Brumm á HafnargötuÓli prik verður á handverksmarkaðinum sem hefur verið færður inn í SBK verkstæðishúsið sem er við gömlu dráttarbrautina við smábátahöfnina, opið verður fimmtud - sunnud.
Mikið úrval af húfum, buffalóum og fl. Nafnamerkt á staðnum
Enn og aftur er Tækifæris Tattoo mætt á staðinn.
Skemmtun fyrir alla fjölskylduna.