Aðalstyrktaraðilar Ljósanætur 2026, svokallaðir Ljósberar, undirrituðu í dag samstarfssamninga við Reykjanesbæ við hátíðlega athöfn í Hljómahöll. Undirritunin fór fram í tengslum við þakkarhóf Ljósanætur þar sem fyrirtækjum og öðrum samstarfsaðilum hátíðarinnar var þakkaður ómetanlegur stuðningur.
Ljósanótt verður haldin dagana 3.–6. september og undirbúningur fyrir eina stærstu bæjarhátíð landsins er nú á lokametrunum. Á sjötta tug fyrirtækja styðja hátíðina með fjárframlögum, þjónustu og margvíslegu samstarfi og skiptir stuðningur atvinnulífsins miklu máli við að gera umfangsmikla og fjölbreytta dagskrá hátíðarinnar að veruleika.
Ljósberar Ljósanætur 2026
Ljósberar eru stærstu bakhjarlar Ljósanætur og eru níu talsins í ár:
Landsbankinn, Skólamatur, KEF Keflavíkurflugvöllur, BUS4U, Blue Car Rental, Nettó, GTS, JeEs arkitektar og Reykjanes Investment.
Við undirritunina þakkaði Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri Ljósberunum og öðrum styrktaraðilum fyrir mikilvægt framlag þeirra til hátíðarinnar og samfélagsins í Reykjanesbæ.
„Ljósanótt verður ekki til hjá sveitarfélaginu einu. Hún verður til vegna þess að samfélagið allt leggst á eitt – íbúar, félög, fyrirtæki og fjölmargir samstarfsaðilar. Stuðningur atvinnulífsins gerir okkur kleift að halda hátíðina með þeim metnaði og krafti sem við viljum og er um leið skýr staðfesting á þeirri samstöðu sem einkennir samfélagið okkar,“ sagði Vilhjálmur.
Saman með ljós í hjarta
Ljósanótt er menningar- og fjölskylduhátíð þar sem íbúar, félög, listafólk og fyrirtæki taka virkan þátt í að skapa fjölbreytta dagskrá. Þessi samstaða endurspeglast í einkunnarorðum hátíðarinnar, „Saman með ljós í hjarta“.
Dagskrá Ljósanætur 2026 er aðgengileg á ljosanott.is, þar sem einnig má finna upplýsingar um styrktaraðila og samstarfsaðila hátíðarinnar.








