Takk fyrir frábæra Ljósanótt
8. september 2026

Ljósanótt 2026 er að baki eftir einstaklega vel heppnaða hátíð þar sem Reykjanesbær iðaði af lífi, menningu og góðri stemningu. Fjöldi fólks lagði leið sína á hátíðina og tók þátt í fjölbreyttri dagskrá sem teygði sig um bæinn allan.


Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri segir mikla ástæðu til að vera stolt af hátíðinni og þakkar öllum þeim fjölmörgu sem lögðu sitt af mörkum til að gera Ljósanótt að þeirri hátíð sem hún er.


„Ljósanótt er okkar hátíð og við getum svo sannarlega verið stolt af henni. Reykjanesbær skartaði sínu fegursta og við tókum á móti miklum fjölda gesta með glæsibrag. Það er vart hægt að hugsa sér betri leið til að kveðja sumarið og ganga inn í haustið af krafti,“ segir Vilhjálmur.

 

Samfélagið tók virkan þátt

Eitt af því sem einkenndi Ljósanótt í ár var hversu víða líf og fjör skapaðist. Samhliða dagskrá hátíðarinnar fjölgaði viðburðum víðs vegar um bæinn, listasýningar og pop-up staðir spruttu upp, verslanir og veitingastaðir tóku virkan þátt og handverksfólk, listafólk, félagasamtök og fjölmargir aðrir lögðu sitt af mörkum.


„Það var sérstaklega ánægjulegt að sjá hversu öflugt samfélagið okkar var í að byggja ofan á þann grunn sem Reykjanesbær leggur með hátíðinni. Allt þetta gerði Ljósanótt enn stærri og líflegri og stemningin hélst langt fram á sunnudag,“ segir Vilhjálmur.


Að baki hátíð af þessari stærðargráðu liggur jafnframt mikil vinna. Fjöldi starfsmanna Reykjanesbæjar kemur að skipulagningu, undirbúningi og framkvæmd Ljósanætur auk fjölmargra samstarfsaðila, verktaka, fyrirtækja og einstaklinga.


„Það er auðvelt að sjá glæsilega hátíð, fullar götur og góða stemningu þegar allt er komið af stað. Það sem sést síður er öll vinnan sem liggur að baki - vikur og mánuðir af undirbúningi og síðan langir dagar meðan á hátíðinni stendur. Öllum þeim sem komu að hátíðinni með einum eða öðrum hætti færi ég innilegar þakkir.“

 

Takk fyrir Ljósanótt 2026

Reykjanesbær þakkar öllum sem komu að Ljósanótt 2026 fyrir þeirra framlag - starfsfólki, samstarfsaðilum, styrktaraðilum, listafólki, félagasamtökum, fyrirtækjum, viðburðahöldurum og öllum öðrum sem lögðu hönd á plóg.



Síðast en ekki síst eru íbúum og gestum færðar bestu þakkir fyrir þátttökuna og fyrir að skapa þá einstöku stemningu sem einkenndi bæinn alla hátíðardagana.

 

Takk fyrir frábæra Ljósanótt – og sjáumst að ári!

 

Vilhjálmur Árnason,

bæjarstjóri


6. september 2026
Ljósanótt 2026 lýkur í dag eftir viðburðaríka hátíðardaga í Reykjanesbæ. Mikill mannfjöldi lagði leið sína á hátíðina í gær. Árgangagangan setti svip sinn á bæinn og hátíðarsvæðið iðaði af lífi áður en stórtónleikar og flugeldasýning settu punktinn yfir i-ið á laugardagskvöldinu í blíðskaparveðri sem skapaði ógleymanlega stemningu yfir miðbænum. Þótt stærsti dagur hátíðarinnar sé að baki er Ljósanótt ekki alveg búin. Bjart og fallegt veður tekur á móti gestum á síðasta deginum og fjölbreytt dagskrá verður víða um Reykjanesbæ. Meðal dagskrárliða í dag er söguganga um gamla bæinn í Keflavík kl. 11 og síðar um daginn tekur tónlistin við á ýmsum stöðum. Tónleikar verða í Kirkjuvogskirkju í Höfnum og kvölddagskrá verður að venju í Keflavíkurkirkju, auk þess sem minningartónleikarnir Himinn og jörð um Gunnar Þórðarson fara fram í Hljómahöll. Það er einkar viðeigandi að á Ljósanótt gefist tækifæri til að minnast Gunnars og þess mikla tónlistararfs sem hann skilur eftir sig. Sunnudagurinn er jafnframt góður dagur til að rölta um bæinn, heimsækja sýningar og viðburði og njóta þess síðasta sem Ljósanótt 2026 hefur upp á að bjóða áður en hátíðinni lýkur. Alla dagskrá dagsins má finna á ljosanott.is. Ljósanótt 2026 lýkur í dag, sunnudaginn 6. september.
5. september 2026
Ljósanótt er komin á fullt í Reykjanesbæ og framundan er stærsti dagur hátíðarinnar. Fjölbreytt dagskrá verður í bænum í dag, laugardaginn 5. september, og búist er við miklu lífi á hátíðarsvæðinu frá morgni og fram á kvöld.  Föstudagurinn fór vel fram og samkvæmt upplýsingum frá lögreglu gekk nóttin vel. Nú tekur laugardagurinn við með þéttri dagskrá fyrir alla aldurshópa. Einn af föstu og skemmtilegustu liðum Ljósanætur er árgangagangan sem leggur af stað eftir hádegið og endar við stóra sviðið. Þar koma saman fjölmargir árgangar og sérstaklega er 50 ára árgangurinn jafnan áberandi og setur sinn svip á gönguna og móttökuna á hátíðarsvæðinu. Dagskráin heldur áfram víða um bæinn í allan dag með tónlist, sýningum, ókeypis barnadagskrá og ýmiss konar uppákomum. Í kvöld verður síðan stórtónleikadagskrá Ljósanætur á stóra sviðinu. Þar koma fram Leikfélag Keflavíkur með brot úr We Will Rock You, Alaska1867, Hipsumhaps, Birgitta Haukdal og Kristmundur Axel ásamt hljómsveit og Emmsjé Gauti. Hin árlega flugeldasýning Ljósanætur verður kl. 22:00. Tónleikunum verður einnig útvarpað á Rás Gestir eru hvattir til að gefa sér góðan tíma, kynna sér lokanir og aðkomu að hátíðarsvæðinu og njóta dagsins saman. Alla dagskrá Ljósanætur má finna á ljosanott.is. Ljósanótt stendur yfir í Reykjanesbæ dagana 3.–6. september.
4. september 2026
Fjölbreytt dagskrá fram undan
31. ágúst 2026
Tilboð fyrir bæjarbúa í tívolítækin 2026 Á Ljósanótt 2026 hafa tvö fyrirtæki með tívolítæki staðfest komu sína, Sprell og Kastalar. SPRELL – verður með tæki á túninu við aðalsviðið frá fimmtudegi til sunnudags. KASTALAR – verða með tæki frá föstudegi til sunnudags á túninu við Duustorg við enda Vesturgötu og Vesturbrautar. Opnunartímar í tívolítækin eru eftirfarandi: Kastalar Sprell Fös 15-20 16-22 Lau 12-22 13-23 Sun 12-16 14-17 Kaupa þarf miða hjá hvoru fyrirtæki fyrir sig og því gilda EKKI sömu miðar hjá báðum aðilum. Athygli er vakin á því að frítt verður í hoppukastalaland fyrir yngstu börnin í Skrúðgarðinum í Keflavík á laugardegi og sunnudegi! Íbúum Reykjanesbæjar býðst að kaupa miða í tívolítæki hjá fyrirtækjunum á tilboðsverði miðvikudaginn 2. september og fimmtudaginn 3. september! SPRELL 2. september miðvikudagur frá kl. 17-20. 3. september fimmtudagur frá kl. 17-20 Stakur miði verður á 50% afslætti (250kr) þessa tvo daga en eftir það fara þeir í almenna sölu. 3-4 miðar í hvert tæki og endurgreiðsla ómöguleg. KASTALAR 2. september miðvikudagur frá kl. 15-19 3. september fimmtudagur frá kl. 15-19 Stakur miði verður á 50% afslætti (250kr) þessa tvo daga en eftir það fara þeir í almenna sölu og eru verðin þá eftirfarandi: Einn miði 500kr 6 miðar 2500kr 10 miðar 4000kr 20 miðar 7000kr 30 miðar + tveir skammtar af popp eða candyfloss = 11.000kr 2-4 miðar í hvert tæki.
26. ágúst 2026
Aðalstyrktaraðilar Ljósanætur 2026, svokallaðir Ljósberar , undirrituðu í dag samstarfssamninga við Reykjanesbæ við hátíðlega athöfn í Hljómahöll. Undirritunin fór fram í tengslum við þakkarhóf Ljósanætur þar sem fyrirtækjum og öðrum samstarfsaðilum hátíðarinnar var þakkaður ómetanlegur stuðningur. Ljósanótt verður haldin dagana 3.–6. september og undirbúningur fyrir eina stærstu bæjarhátíð landsins er nú á lokametrunum. Á sjötta tug fyrirtækja styðja hátíðina með fjárframlögum, þjónustu og margvíslegu samstarfi og skiptir stuðningur atvinnulífsins miklu máli við að gera umfangsmikla og fjölbreytta dagskrá hátíðarinnar að veruleika. Ljósberar Ljósanætur 2026 Ljósberar eru stærstu bakhjarlar Ljósanætur og eru níu talsins í ár: Landsbankinn, Skólamatur, KEF Keflavíkurflugvöllur, BUS4U, Blue Car Rental, Nettó, GTS, JeEs arkitektar og Reykjanes Investment. Við undirritunina þakkaði Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri Ljósberunum og öðrum styrktaraðilum fyrir mikilvægt framlag þeirra til hátíðarinnar og samfélagsins í Reykjanesbæ. „Ljósanótt verður ekki til hjá sveitarfélaginu einu. Hún verður til vegna þess að samfélagið allt leggst á eitt – íbúar, félög, fyrirtæki og fjölmargir samstarfsaðilar. Stuðningur atvinnulífsins gerir okkur kleift að halda hátíðina með þeim metnaði og krafti sem við viljum og er um leið skýr staðfesting á þeirri samstöðu sem einkennir samfélagið okkar,“ sagði Vilhjálmur. Saman með ljós í hjarta Ljósanótt er menningar- og fjölskylduhátíð þar sem íbúar, félög, listafólk og fyrirtæki taka virkan þátt í að skapa fjölbreytta dagskrá. Þessi samstaða endurspeglast í einkunnarorðum hátíðarinnar, „Saman með ljós í hjarta“ . Dagskrá Ljósanætur 2026 er aðgengileg á ljosanott.is , þar sem einnig má finna upplýsingar um styrktaraðila og samstarfsaðila hátíðarinnar.
18. ágúst 2026
Takmarkanir á umferð
18. ágúst 2026
Strætó, rafhlaupahjól, stæði fyrir húsbíla og ferðavagna, hátíðarkort o.fl.
18. ágúst 2026
Við hvetjum alla til þess að skilja bílinn eftir heima á Ljósanótt og nýta sér ókeypis Ljósanæturstrætó. Á Ljósanótt verður boðið upp á sérstakan Ljósanæturstrætó innanbæjar á hluta föstudags, á laugardag og sunnudag. Ókeypis aðgangur verður í Ljósanæturstrætó. Þegar Ljósanæturstrætó tekur við af hefðbundum strætó verða eknar þrjár leiðir R1 Keflavík, R2 Njarðvík, R3 Ásbrú og svo pöntunarþjónusta fyrir R4 Hafnir. Vagnarnir munu fara 50 mínútur yfir heila tímann á söfnunarstað við Myllubakkaskóla áður en þeir halda í miðstöð í Krossmóa til að hefja leið sína. Föstudagur: Ljósanæturstrætó tekur við af innanbæjarstrætó kl. 16:00-01:00 og ekur á klukkustunda fresti. Fyrsta ferð kl. 16:00 og lokaferð kl. 23:50 frá Myllubakkaskóla. Laugardagur Akstur á klukkustunda fresti samkvæmt áætlun frá kl. 10:00-01:00. Fyrsta ferð kl. 10:00 og lokaferð kl. 23:50 frá Myllubakkaskóla. Sunnudagur: Akstur á klukkustunda fresti samkvæmt áætlun frá kl. 10:00-17:00. Fyrsta ferð kl. 10:00 og lokaferð kl. 15:50 frá Myllubakkaskóla. Upplagt fyrir fjölskyldur og hópa að halda gleðinni gangandi með strætóferð auk þess sem yngsta kynslóðin kann vel að meta það. Athugið: Landsbyggðarstrætó gengur samkvæmt hefðbundinni áætlun og verður söfnunarstaður við Miðstöð. Hægt er að sjá áætlun á straeto.is
15. júlí 2026
Verður þú með viðburð á Ljósanótt?
15. júlí 2026
Viltu selja eitthvað á Ljósanótt?