Takmarkanir á umferð
Takmarkanir verða á umferð gatna við hátíðarsvæði Ljósanætur frá föstudegi til sunnudags. Hátíðarsvæðið er sýnt á meðfylgjandi mynd.
Þungar lokanir á og umhverfis Hafnargötu taka gildi föstudaginn 4. september kl. 09:00 og þeim verður aflétt sunnudaginn 6. september kl. 13:00 ef frá er talin lokun við Ægisgötu sem verður aflétt kl. 19:00.
Dagskrá föstudagssviðsins og kjötsúpunnar frá Skólamat fer fram við Ráðhús Reykjanesbæjar að Tjarnargötu 12. Sömuleiðis verður boðið upp á ókeypis barnadagskrá í skrúðgarðinum í Keflavík alla helgina. Af þessum sökum verður Tjarnargötu lokað á milli Kirkjuvegs og Vallargötu frá kl. 09:00-23:00 á föstudegi. Bílastæðin við skrúðgarðinn verða lokuð frá föstudagsmorgni til kl. 12:00 á sunnudag.
Hátíðarkort Ljósanætur má finna hér.
Allar hagnýtar upplýsingar má finna hér







