Fjölbreytt dagskrá fram undan
Ljósanótt, menningar- og fjölskylduhátíð Reykjanesbæjar, var formlega sett í Skrúðgarðinum í Keflavík í gær og fram undan er viðburðarík helgi þar sem menning, tónlist, mannlíf og samvera verða í fyrirrúmi um allan bæ.
Fjöldi barna tók þátt í setningarathöfninni, en þar komu saman elstu börn leikskóla Reykjanesbæjar og nemendur í 3., 7. og 10. bekk grunnskólanna. Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri setti hátíðina, fulltrúi Ungmennaráðs dró hinn litríka Ljósanæturfána að húni og Páll Óskar hélt uppi fjörinu við góðar undirtektir. Setningunni lauk svo með sameiginlegum söng Ljósanæturlagsins.
Hátíðarstemningin hélt áfram síðdegis og fram á kvöld þegar sýningar og fjölbreyttir viðburðir opnuðu víða um bæinn. Í Duus safnahúsum voru tvær nýjar sýningar opnaðar, Nína, okkar kærasta Nína í Listasafni Reykjanesbæjar og Litið í baksýnisspegilinn í Byggðasafni Reykjanesbæjar.
Föstudagurinn tekur við
Í dag færist enn meira líf yfir hátíðarsvæðið og fjölbreytt dagskrá stendur yfir frá morgni og langt fram á kvöld. Sýningar og markaðir verða opnir víða, Duus safnahús taka á móti gestum frá kl. 12–18 og síðdegis verður meðal annars boðið upp á ókeypis barnaskemmtun í Skrúðgarðinum.
Frá kl. 18 verður mikið um að vera við Tjarnargötu þegar Skólamatur býður gestum Ljósanætur í kjötsúpu að venju. Á Kjötsúpusviðinu verður jafnframt fjölbreytt dagskrá þar sem DansKompaní verður heiðrað fyrir einstakan árangur á Dance World Cup í Dublin í sumar. DansKompaní stígur á svið ásamt Ungleikhúsinu og Deisí áður en Föruneytið tekur við og heldur uppi stemningunni fram eftir kvöldi.
Föstudagskvöldið býður síðan upp á fjölmarga viðburði víðs vegar um Reykjanesbæ, meðal annars Brekkusöng í Njarðvík, Heima í Höfnum, Heimatónleika, uppistand og tónleika.
Stærsti dagurinn fram undan
Á morgun, laugardag, nær Ljósanótt svo hámarki. Þá verður fjölskyldudagskrá og fjölbreyttir viðburðir um allan bæ, hin sívinsæla Árgangaganga setur svip sinn á bæjarlífið og um kvöldið taka stórtónleikar við á aðalsviði. Þar koma meðal annars fram Leikfélag Keflavíkur með We Will Rock You, Alaska1867, Hipsumhaps, Birgitta Haukdal og Kristmundur Axel ásamt hljómsveit og Emmsjé Gauti. Klukkan 22 lýsir flugeldasýning Björgunarsveitarinnar Suðurnesja upp næturhimininn og ljósin á Berginu verða tendruð.
Leiðarstef Ljósanætur er „Saman með ljós í hjarta“ og íbúar og gestir eru hvattir til að njóta hátíðarinnar saman, sýna hvert öðru og umhverfinu tillitssemi og leggja sitt af mörkum til góðrar og öruggrar hátíðarstemningar.
Ljósanótt stendur til sunnudagsins 6. september og dagskráin heldur áfram alla helgina.
Alla dagskrá Ljósanætur og hagnýtar upplýsingar má finna á ljosanott.is.








