Verður þú með viðburð á Ljósanótt?
Nú fer dagskrá Ljósanætur 2024 óðum að taka á sig mynd. Öll dagskrá birtist hér á vefnum í ágúst.
Allir þeir sem standa fyrir viðburðum á Ljósanótt eru beðnir um að skrá hann sjálfir í viðburðadagskrána og þannig verður hann sjálfkrafa hluti af heildardagskrá Ljósanætur. Það verður einfalt að skrá viðburð.
Í ágúst birtist hér efst í hægra horni síðunnar flipinn "Skrá viðburð." Smellt er á hann og allar upplýsingar um viðburðinn skráðar inn. Hægt er að setja inn upplýsingar á ensku einnig og eru allir hvattir til að gera það en það er þó ekki skilyrði. Merkja þarf við um hvers kyns viðburð er að ræða og einnig hvenær hann fer fram. Mikilvægt er að senda inn mynd með öllum viðburðum. Þegar viðburðurinn er klár til að senda inn er smellt í reitinn "Skrá viðburð." Ef allt hefur gengið upp birtast skilaboðin "Takk fyrir að senda inn viðburð" á skjánum.
Þá fer viðburðurinn til yfirlestrar og samþykktar og í framhaldi er hann birtur á vefsíðunni. Þetta getur tekið allt upp í sólarhring svo engin ástæða er til að örvænta þótt viðburður birtist ekki um leið og hann hefur verið innsendur.






