Strætó, rafhlaupahjól, stæði fyrir húsbíla og ferðavagna, hátíðarkort o.fl.
Allar helstu upplýsingar tengdar hátíðinni má finna hér. Má þar nefna upplýsingar um bílastæði, salerni, lokanir gatna, samgöngur og margt fleira.
Alla dagskráliði Ljósanætur má finna hér, en samantekt á helstu dagskrárliðum til að hlaða niður má finna hér
Hátíðarkort
Hægt er að hlaða niður hátíðarkorti Ljósanætur hér en þar koma fram allar helstu upplýsingar
Stæði fyrir húsbíla og ferðavagna
Hægt verður að leggja ferðavögnum og húsbílum við Smábátahöfnina í Gróf. Þar verður boðið upp á rafmagn og salerni. Einnig er hægt að leggja á Fokkunni við hús Sýslumannsins á Suðurnesjum og á grasbletti við Hringbraut/Vesturbraut. Þar er þó engin þjónusta, hvorki rafmagn né salerni. Upplýsingar um verð má finna hér.
Ljósanæturstrætó - ókeypis
Allar upplýsingar um innanbæjarstrætó má finna hér.
Athugið að landsbyggðarstrætó gengur samkvæmt hefðbundinni áætlun þar sem söfnunarstaður er við Miðstöð. Upplýsingar má finna á
streato.is
Handverksmarkaður á Tjarnargötu 12
Hið margrómaða handverkstjald flyst nú inn á Tjarnargötu 12. Þar lofum við frábærri markaðsstemningu þar sem fjölmargir söluaðilar selja spennandi handverk og annan varning. Nánar hér.
Rafhlaupahjól - Hopp
Hraði verður takmarkaður á hátíðarsvæðinu ásamt því að sérstök afsláttarsvæði verða við Ránargötu og Slippfélagið. Nánar um það hér.
Gleðilega Ljósanótt - saman með ljós í hjarta!






