Víkingaheimar opna dyrnar upp á gátt á Ljósanótt!
Í hjarta safnsins liggur Íslendingur – 23,5 metra víkingaskip, smíðað eftir fyrirmynd Gaukstaðaskipsins. Árið 2000 sigldi skipið alla leið frá Íslandi til New York undir stjórn Gunnars Marels Eggertssonar - sömu leið víkingarnir fóru meira en 500 árum á undan Kólumbusi.
Komdu um borð og upplifðu söguna.
- Gakktu um Íslending
- Skoðaðu sýninguna um landafundina í Vesturheimi
- Klæddu þig upp sem víkingur og taktu mynd í myndakassanum okkar
- Taktu þátt í víkingaratleiknum!
Leystu þrautir, finndu vísbendingar og nældu þér í vinning!
Dagskrá
kl. 10:00–14:00
- Víkingaratleikur fyrir yngri gesti kl. 10:00
- Pulsugrill kl. 12:00
- Víkingar mæta kl. 12:15
- Alexandra, óperusöngkona, kl. 13:00–13:45
Sérstakt Ljósanæturverð: 1.500 kr.
Víkingabraut 1, Njarðvík
- Næg bílastæði
- Aðeins 5 mínútur frá miðbæ Keflavíkur
Sjáumst í Víkingaheimum á Ljósanótt!



