Ljósanæturgospel
Kór Njarðvíkurkirkju heldur gospeltónleika í Njarðvíkurkirkju í tilefni Ljósanætur.
Á efnisskránni verður kraftmikil tónlist í gospelanda, blanda af trúarlegum lögum og öðrum lögum sem kórinn hefur tekið til sín og sett í sinn búning.
Kórinn hefur á undanförnum árum vaxið hratt og gospel og rytmísk kirkjutónlist hafa orðið stór hluti af starfinu. Á Ljósanótt ætlum við að opna kirkjuna, syngja af krafti og bjóða gestum inn í þá stemningu sem hefur einkennt kórinn síðustu misseri.
Þetta verður lifandi tónlistarstund með Kór Njarðvíkurkirkju þar sem áherslan er á góða tónlist, orku og nærveru.
Verið velkomin á Ljósanæturgospel - Aðgangur er ókeypis
Dagsetning og tími
Miðvikudagurinn 2. september
20:00-21:30
Staðsetning
Ytri Njarðvíkurkirkja



