new_icons

Litið í baksýnisspegilinn - sýningaropnun

Á sýningunni er litið í baksýnisspegilinn á skemmtileg augnablik sem hafa verið fönguð á mynd og staldrað við nokkrar af helstu vörðum bílvæðingar á Suðurnesjum. Í safninu er til fjöldi ljósmynda sem endurspegla þær miklu breytingar sem hafa orðið á samgöngum síðan fyrsta bílferðin var farin frá Hafnarfirði til Keflavíkur árið 1913. Betri vegir og aukinn fjöldi bíla í kjölfar síðari heimsstyrjaldar höfðu mikil áhrif, atvinnulíf efldist, vöruflutningar urðu einfaldari og ferðalög almennari.

Dagsetning og tími

Fimmtudagurinn 3. september
18:00-20:00

Staðsetning

Duus safnhús

Aðrir viðburðir