Viðburðir

new_icons
Pallaball á Ljósanótt

Páll Óskar kynnir:

Pallaball á Ljósanótt

Páll Óskar mætir á Ljósanótt og verður með Pallaball í Stapanum laugardagskvöldið 2. september.

Palli stjórnar stuðinu pásulaust frá 22:30 til 03:00! Það stefnir því allt í maraþon stuðkeyrslu í Stapanum þar sem Palli þeytir skífum, spilar öll bestu partílög mannkynssögunnar og fær dragdrottningar í heimsókn til að trylla liðið. Þegar leikar standa sem hæst syngur Palli sjálfur sín eigin lög af sínum langa ferli, en fyrsta sólóplatan hans, "Stuð" kom út í nóvember 1993. Poppstjarnan fagnar því 30 ára starfsafmæli um þessar mundir og hefur aldrei verið betri, orkumeiri og síðast en ekki síst - gordjöss.  

Miðaverð er 5500 kr. - Miðasala fer fram á Tix.is

Aldurstakmark 20 ára (sýna þarf löggild skilríki)

Miðasala

Dagsetning og tími

Laugardagurinn 2. september
22:30 - 03:00

Staðsetning

Hljómahöll, Hjallavegur 2, Reykjanesbær, 260

Aðrir viðburðir

Share by: