new_icons

Egó á Ljósanótt

Ágúst Kristinn Eðvarðsson kynnir spenntur EGÓ, ilmvatns merkið sitt.


Sem heimamaður er honum það mikilvægt að fyrsta kynning merkisins verði í heimabæ sínum. Áður en hann deilir EGÓ með umheiminum vill hann hefja vegferðina þar sem allt byrjaði og ekki er til betri tími eða staður fyrir það en á Ljósanótt.


Ferilð að baki EGÓ hefur tekið um tvö ár og hefur falið í sér ótal tilraunir, þróun á ilmum, ýmisskonar hönnun, og allri þeirri vinnu sem fer í að byggja ilmvatns merki frá grunni. Á leiðinni hefur hann fengið ráðgjöf og aðstoð frá fólki innan ilmvatns heimsins , bæði hér heima og erlendis, og nú er loksins komið að því að sýna afraksturinn.


Á Ljósanótt verða fyrstu ilmir EGÓ kynntir opinberlega í fyrsta sinn og gestir fá tækifæri til að upplifa heim merkisins, prófa ilmvötnin og kynnast sögunni og hugmyndunum á bak við þá.


Viðburðurinn verður þó meira en bara ilmvatns kynning. Á staðnum verður sérstök upplifun þar sem ilmur, tónlist, hönnun og list mætast, ásamt samstarfi við íslenska listamenn og lifandi tónlist.

Dagsetning og tími

Fimmtudagurinn 3. september
Kl. 17:00-22:00
Föstudagurinn 4. september
16:00-20:00
Laugardagurinn 5. september
13:00-18:00
Sunnudagurinn 6. september
13:00-16:00

Staðsetning

Fisherhús

Aðrir viðburðir