Sjáumst á Ljósanótt! - Bókaútgáfan Dirrindi
Alltaf svo gaman á Ljósanótt!
Hjónin Marta og Frikki ætla að standa vaktina yfir Ljósanæturhelgina í göngugötunni á Park inn hótelinu, Hafnargötu 57 í Keflavík.
Bókaútgáfan þeirra Dirrindí hefur gefið út sjö bækur frá árinu 2012 sem allar miða að því að auka vellíðan hjá lesendum.
Á Ljósanótt munu þau bjóða þrjár vinsælustu bækurnar til sölu á frábæru tilboðsverði. Sumar hafa verið uppseldar og ófáanlegar.
Bækurnar hafa hlotið mikið lof kvenlesenda og verið vinsælar á náttborðinu, á ferðalögum eða í sumarbústaðnum.
"Kíktu á okkur og njóttu þess í leiðinni að hitta fullt af skemmtilegu fólki!
Við hlökkum til að sjá þig!"
Kær kveðja,
Marta og Frikki.
Dagsetning og tími
Fimmtudagurinn 3. september
17:00-22:00
Föstudagurinn 4. september
17:00-20:00
Laugardagurinn 5. september
13:00-16:00
Sunnudagurinn 6. september
13:00-16:00
Staðsetning
Park inn



