Eldur á Reykjanesskaga
Myndasýningin Eldur á Reykjanesskaga samanstendur af myndskeiðum sem tekin eru á dróna í eldgosunum á Reykjanesskaga á árunum 2021-2024 og eru tengd við tónlist Gustav Holst, Pláneturnar. Það er plánetan Mars sem hljómar undir í þessari myndasýningu þar sem myndskeið og tónlist renna saman í eina heild. Plánetan Mars í verki Holst er tæpar 8 mínútur að lengd og þar af leiðandi er myndasýningin tæpar 8 mínútur í flutningi.
Eldur á Reykjanesskaga er ekki heimildamynd um eldgosin á Reykjanesskaga í tímaröð, heldur miklu fremur listræn framsetning í myndum og tónum.
Höfundur myndasýningarinnar er Magnús Einarsson.
Sýnd í Félagsbíói á Bókasafni Reykjanesbæjar.
Dagsetning og tími
Fimmtudagurinn 3. september
15:00-18:00
Sunnudagurinn 6. september
14:00-17:00
Staðsetning
Bókasafn Reykjanesbæjar, aðalsafn



