Listakaffihús Bjargarinnar
Björgin - geðræktarmiðstöð Suðurnesja leggur áherslu á samveru, virkni og þátttöku í samfélaginu. Í ár mun Björgin halda Listakaffihús, þar sem gestum gefst tækifæri til að kynnast starfseminni í notalegu og skapandi umhverfi.
Á Listakaffihúsinu verður ýmislegt góðgæti til sölu ásamt fjölbreyttu handverki og vörum sem notendur Bjargarinnar hafa sjálfir skapað og bjóða til sölu. Markmiðið er að skapa skemmtilega samveru, gefa notendum tækifæri til að sýna sköpun sína og um leið bjóða samfélagið velkomið í Björgina.
Dagsetning og tími
Fimmtudagurinn 3. september
14:00-18:00
Föstudagurinn 4. september
12:00-16:00
Staðsetning
Björgin



