Orðablik - samverustundir og málþroski
Æskuvinkonurnar Hjördís Hafsteinsdóttir (talmeinafræðingur) og Ásdís Vala Freysdóttir (bs í Sálfræði) eru stofnendur Orðablik. Aðal markmiðið er að stuðla að samverustundum fullorðinna og barna. Á sama tíma eru börnin að læra stafina og bæta við sig orðaforða. Vörurnar þeirra eru því mjög hentugar fyrir barnafjölskyldur, ekki síst fjölskyldur af erlendum uppruna og íslenskar fjölskyldur sem búa erlendis.
Þær eru eins og í fyrra með Stafapoka til sýnis og sölu. Auk þess eru þær komnar með fjórar nýjar vörur. Nýju vörurnar eru Litapoki, Tölupoki, Perlublik (bók með perluuppskriftum) og Jólablik (jólasaga og samverudagatal).
Dagsetning og tími
Fimmtudagurinn 3. september
17:00-22:00
Föstudagurinn 4. september
15:00-19:00
Laugardagurinn 5. september
13:00-19:00
Sunnudagurinn 6. september
13:00-16:00
Staðsetning
Park inn



