new_icons

Söguganga: Húsin segja söguna

Arkitektúrganga um gömlu Keflavík. Í þessari léttu og fræðandi sögugöngu leiðir Jón Stefán Einarsson arkitekt gesti frá Duus safnahúsum um elsta hluta Keflavíkur að Vallargötu og Hafnargötu.


Saga bæjarins verður lesin úr húsunum, götunum og smáatriðum sem við göngum oft fram hjá. Jón Stefán fjallar á aðgengilegan hátt um ólíkar leiðir til að varðveita, endurnýja og byggja áfram í sögulegu umhverfi — og hvernig vönduð byggingarlist getur styrkt sérkenni gamla bæjarins og skapað honum áframhaldandi líf.


Inn í frásögnina fléttast skemmtilegar sögur af fólki, húsum og bæjarlífi, meðal annars af bíói í gömlu salthúsi, húsum byggðum úr Jamestown-timbri og brunninum sem gaf Brunnstíg nafn sitt. Gangan gefur þátttakendum nýja sýn á hvernig byggingarlist, mannlíf og þróun Keflavíkur tengjast.


Sögugangan er á vegum Byggðasafns Reykjanesbæjar og er þátttaka ókeypis. Verið öll velkomin!

Dagsetning og tími

Sunnudagurinn 6. september
11:00-12:30

Staðsetning

Duus safnhús

Aðrir viðburðir