new_icons

Bland í poka-myndlistasýning

Bland í poka er myndlistarsýning þar sem fjölbreytileikinn fær að njóta sín – bæði í efnistökum, aðferðum og viðfangsefnum.


Á sýningunni verða verk frá ólíkum tímabilum ásamt nýjum verkum sem unnin hafa verið sérstaklega með Ljósanótt í huga. Unnið er með akrýlmálningu, vatnsliti, blek, blandaða tækni og áferðarvinnu, þar sem ólík efni og aðferðir fá að mætast.


Verkin eru jafn fjölbreytt og þau eru persónuleg. Sum eiga rætur í minningum og upplifunum, önnur hafa orðið til út frá augnablikinu, forvitni og löngun til að prófa eitthvað nýtt.



Verið hjartanlega velkomin á sýninguna.


— Ania

Dagsetning og tími

Fimmtudagurinn 3. september
15:00-21:00
Föstudagurinn 4. september
13:00-21:00
Laugardagurinn 5. september
13:00-21:00
Sunnudagurinn 6. september
11:00-16:00

Staðsetning

Nupandeluxe

Aðrir viðburðir