Viðburðir

new_icons
Söngstund í Ráðhúsinu

Starfsfólk Ráðhússins býður til söngstundar í Ráðhúsinu fimmtudaginn 31. ágúst kl. 12:15 til 12:45.

Bæjarstjórinn stýrir stundinni og dregur vafalaust upp fiðluna góðu en hann sendir út boð til allra aflögufærra hljóðfæraleikara um að mæta á staðinn og „djamma“ með. Við hin sem ekki getum spilað syngjum með eins og enginn sé morgundagurinn.

Söngtextar munu liggja frammi svo það er bara að mæta á staðinn og njóta stundarinnar.

Öll velkomin á meðan húsrúm leyfir.

Dagsetning og tími

Fimmtudagurinn 31. ágúst
12:15 - 12:45

Staðsetning

Tjarnargata 12, Reykjanesbær, 230

Aðrir viðburðir

Share by: