Viðburðir

new_icons
Notaleg stund með Jönu Maríu og Vigni Þór

Söng- og leikkonan Jana María leiðir áhorfendur í gegnum tónlistina sem tengdi Suðurnesin við veru Varnarliðsins ásamt píanóleikaranum Vigni Þór Stefánssyni.

Á efnisskrá má meðal annars finna tónlist þekkta í flutningi Burt Bacharach, Ellýjar og Villa Vill, Frank Sinatra, Caterina Valente, Hljóma og fleiri.

Nærvera bandaríska hersins á Keflavíkurflugvelli hafði óneitanlega áhrif á líf og störf Suðurnesjamanna á seinni hluta síðustu aldar.

Menningin í Keflavík tók stórum breytingum, ekki síst tónlistarlega, því herinn þurfti jú hljómsveitir og íslenskar söngkonur til að koma fram á klúbbunum.

Öll velkomin á meðan húsrúm leyfir.

Dagsetning og tími

Föstudagurinn 1. september
14:00 - 15:00

Staðsetning

Nesvellir , Njarðarvellir 4 , Reykjanesbær, 260

Aðrir viðburðir

Share by: