Hin íslenska Drúídregla efnir til opins húss laugardaginn 5. september næstkomandi.
Dagskráin fer fram í húsnæði reglunnar að Flugvallarbraut 736 í Reykjanesbæ á milli klukkan 14:00 og 17:00. Viðburðurinn er tilvalinn fyrir þá sem hafa áhuga á að kynnast starfsemi reglunnar og verða hluti af öflugu bræðralagi þar sem gildin vinátta, mannrækt og virðing eru í fyrirrúmi. Eins og einkunnarorð reglunnar segja er þetta staður „þar sem góðir menn verða betri“. Gestum verður boðið upp á kaffi og meðlæti á meðan þeir kynna sér starfið.
Upplýsingar um viðburðinn:
Dagsetning: 5. september Kl. 14:00 – 17:00
Staðsetning: Flugvallarbraut 736, 262 Reykjanesbær
Veitingar: Kaffi og meðlæti í boði
Öll áhugasöm eru hjartanlega velkomnir!



