new_icons

Ljósanótt á KEF 2.-6. september

Ljósanæturtilboð verða á völdum gjafabréfum fyrir öll vörumerki KEF, ýmist í KEF Shop á www.kef.is eða í móttöku Hótel KEF.


MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER


KONUKVÖLD Í KEF SPA KL. 20:00–00:00

Við hefjum Ljósanótt með glæsilegu konukvöldi í KEF SPA! Snjólaug Lúðvíksdóttir kitlar hláturtaugarnar, tvíburasysturnar hjá Circalo bjóða upp á súkkulaðikynningu og Stefán Ingi vínþjónn leiðir freyðandi smökkun á Prosecco, Cava og Crémant í boði Mekka Wines & Spirits.


Veglegir gjafapokar fylgja öllum miðum og góð tilboð verða á KEF SPA Bar. Miðahafar fá auk þess 10% afslátt af mat á KEF Restaurant fyrir viðburðinn.


Taktu vinkonurnar, mömmu eða systur með og njótið saman frábærrar kvöldstundar í KEF SPA!


Skráning fer fram á www.kefspa.is.


Ljósanæturmatseðill verður á KEF Restaurant og sérstök ljósanæturtilboð á Diamond Lounge & Bar.


FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER


Jazzbandið Þríó skapar ljúfa stemningu á KEF Restaurant kl. 18:00–21:00.


Ljósanæturmatseðill verður á KEF Restaurant og sérstök ljósanæturtilboð á Diamond Lounge & Bar, ásamt lengri opnunartíma á báðum stöðum.


FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER


Gerðu vel við þig í hádeginu á KEF Restaurant: Nautalund & bernaise á aðeins 6.000 kr.


Jazzbandið Þríó heldur stemningunni gangandi á KEF Restaurant kl. 18:00–21:00.


Ljósanæturmatseðill verður á KEF Restaurant og sérstök ljósanæturtilboð á Diamond Lounge & Bar, ásamt lengri opnunartíma á báðum stöðum.


LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER


Ljósanæturbröns hefst á KEF Restaurant kl. 11:00 – tilvalinn fyrir árgangagönguna.


Ljósanæturmatseðill verður á KEF Restaurant og sérstök ljósanæturtilboð á Diamond Lounge & Bar, ásamt lengri opnunartíma á báðum stöðum.


SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER


Ljúf lok á Ljósanótt með Ljósanæturmatseðli á KEF Restaurant og sérstökum ljósanæturtilboðum á Diamond Lounge & Bar.

Dagsetning og tími

Miðvikudagurinn 2. september
11:00-00:00
Fimmtudagurinn 3. september
11:00-00:00
Föstudagurinn 4. september
11:00-00:00
Laugardagurinn 5. september
11:00-00:00
Sunnudagurinn 6. september
11:00-00:00

Staðsetning

KEF

Aðrir viðburðir