Ljósanæturleikur í deild þeirra bestu
Skapast hefur sterk hefð fyrir Ljósanæturleikjum Keflavíkur sem jafnan er stærsti og eftirminnilegusti heimaleikur ársins. Þá fyllist HS Orku völlurinn af Keflvíkingum og gestum Ljósanætur og stemningin verður eins og hún gerist best.
Í ár verður engin undantekning þar á þegar Keflavík fær Valsmenn í heimsókn í Bestu deild karla laugardaginn 5. september.
Leikurinn hefst kl. 16:15 og er tilvalin upphitun fyrir dagskrá laugardagsins á Ljósanótt.
Við hvetjum Keflvíkinga nær og fjær til að mæta í bláu, fjölmenna á HS Orku völlinn og taka þátt í einum af hápunktum Ljósanæturhelgarinnar.
Dagsetning og tími
Laugardagurinn 5. september
16:00-18:30
Staðsetning
HS Orkuvöllurinn



