new_icons

Slagarar, súpa og stemmning með Föruneytinu

Fössari með Föruneytinu


Föruneytið stígur á svið á kjötsúpusviði Ljósanætur á föstudagskvöldinu og leikur fjölda slagara sem hæfa tilefninu. Þetta verður einfalt og skemmtilegt: Föruneytið heldur uppi dúndrandi stemningu á meðan gestir gæða sér á dýrindis kjötsúpu.


Hljómsveitina Föruneytið þarf vart að kynna fyrir fólki á Suðurnesjum. Hún var húshljómsveit á Paddy’s í Keflavík í mörg ár og hefur troðið upp nánast alls staðar þar sem hægt er að koma fyrir trommusetti og gítarmagnara.

Sagan hófst þegar Ólafur Þór Ólafsson (gítar, söngur) og Hlynur Þór Valsson (söngur, gítar) mynduðu trúbadúradúettinn Hobbitanna. Fljótlega bættust svo þeir Ólafur Ingólfsson (trommur) og Pálmar Guðmundsson (bassi) í hópinn og Föruneytið varð til. Nýlega kom Smári Guðmundsson (gítar) inn í bandið og á Ljósanótt mun litli bróðir trommarans, Arnar Ingólfsson, leysa af á bassanum í forföllum Pálmars.


Það er því ekkert annað í stöðunni en að mæta, fá sér súpu, taka undir með Föruneytinu og gera föstudagskvöldið að alvöru veislu!

Dagsetning og tími

Föstudagurinn 4. september
18:30-20:00

Staðsetning

Tjarnargata, Reykjanesbær, 230

Aðrir viðburðir