new_icons

Vöfflukaffi á Vatnsnesi

Á sunnudegi Ljósanætur flytur KEF Café sig yfir í hið sögufræga Vatnsneshús og býður gestum í notalegt vöfflukaffi frá kl. 12:00–17:00.


Komdu og njóttu nýbakaðra vafflna, kaffis og annarra gómsætra veitinga í fallegu og sögulegu umhverfi. Veitingarnar verða bornar fram á íslenska mávastellinu í anda gamalla tíma.


Á matseðlinum verða klassískar kræsingar að hætti ömmu sem vekja upp ljúfar minningar og skapa sanna íslenska heimilisstemningu:


🧇 Vöfflur með rabarbarasultu og þeyttum rjóma

🍓 Marengsterta með berjum og Nóa Síríus-súkkulaði

🤎 Kleinur með og án súkkulaðis

🍤 Rækjubrauðterta

🥪 Skinkubrauðterta

🍫 Súkkulaðiterta með þeyttum rjóma


Vatnsneshús, Vatnsnesvegi 8, Keflavík

Sunnudagur 6. september

Kl. 12:00–17:00


Hlökkum til að taka á móti ykkur á Vatnsnesi og eiga notalegan lokadag Ljósanætur saman.

Dagsetning og tími

Sunnudagurinn 6. september
13:00-16:00

Staðsetning

Vatnsnes

Aðrir viðburðir