new_icons

Vitin fimm og minningarnar - Málverkasýning í Kirkjulundi

Guðmundur Karl Brynjarsson hefur þjónað sem prestur í 30 ár, lengst af í Kópavogi. Hann hefur dundað sér við myndlist frá unga aldri og hefur hún leitað meira og meira á huga hans hin síðari ár.


Fyrir tveimur árum fór hann í nám í olíumálun í Flórens á Ítalíu.


Myndirnar sem Guðmundur Karl sýnir í Kirkjulundi eru sumar málaðar í náminu á Ítalíu, aðrar tengjast æskuslóðunum í Keflavík og töfrum minninganna sem breyta hversdeginum í ævintýri. Sýningin opnar miðvikudagskvöldið 2. september og mun standa yfir Ljósanæturdagana. Myndlistarsýningunni lýkur með helgistund í Keflavíkurkirkju í lok Ljósanætur sunnudagskvöldið 6. september kl. 20. 

Dagsetning og tími

Fimmtudagurinn 3. september
17:00-22:00
Föstudagurinn 4. september
17:00-20:00
Laugardagurinn 5. september
14:30-18:00
Sunnudagurinn 6. september
13:00-16:00

Staðsetning

Keflavíkurkirkja

Aðrir viðburðir