Vitin fimm og minningarnar - Helgistund
Helgistundin er í umsjón sr. Guðmundar Karls Brynjarssonar og hljómsveitarinnar Þriggja engla og þreyttra hesta og ber sömu yfirskrift og málverkasýning í Kirkjulundi á Ljósanótt. Hljómsveitina skipa, að þessu sinni, Bergþór Haukdal Jónasson, Birta Sigurjónsdóttir, Henning Emil Magnússon, Jón Ólafur Erlendsson og Örn Úlfar Sævarsson. Þrír englar og þreyttir hestar hafa getið sér gott orð fyrir flutning á lögum Bob Dylan við ýmsar uppákomur undanfarin ár, til dæmis Dylan guðsþjónustu í Keflavíkurkirkju síðasta vor.
Dagsetning og tími
Sunnudagurinn 6. september
20:00-21:00
Staðsetning
Keflavíkurkirkja



